„Þuríður Jónsdóttir (Norðurgarði)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Þuríður Jónsdóttir''' vinnukona í Norðurgarði og víðar fæddist 13. desember 1833 í Hólasókn u. Eyjafjöllum.<br> Faðir hennar var Jón bóndi á ...) |
m (Verndaði „Þuríður Jónsdóttir (Norðurgarði)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 19. nóvember 2014 kl. 11:14
Þuríður Jónsdóttir vinnukona í Norðurgarði og víðar fæddist 13. desember 1833 í Hólasókn u. Eyjafjöllum.
Faðir hennar var Jón bóndi á Hrútafelli og Helgusöndum u. Eyjafjöllum, f. 1801 í Breiðavíkursókn, d. 17. nóvember 1869, Brynjólfsson.
Móðir Þuríðar var Þóra húsfreyja, f. 1799, d. 4. mars 1864, Jónsdóttir bónda í Steinum og á Hrútafelli, f. 1769 í Pétursey í Mýrdal, d. 30. apríl 1834 á Hrútafelli, Eiríkssonar bónda, líklega á Leirum u. Eyjafjöllum, f. 1736, Jónssonar, og konu Eiríks á Leirum, Katrínar húsfreyju, f. 1725, d. 19. janúar 1805, Jónsdóttur.
Systkini Þuríðar í Eyjum voru Ísak Jakob Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 1833, d. 9. apríl 1899 og Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 1829, d. 29. apríl 1873.
Þuríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún fluttist vinnukona að Svaðkoti 1856 og var vinnukona á Búastöðum 1860-1863, í Norðurgarði 1864-1867. Þá fór hún að Miðkoti í Landeyjum.
Þuríður kom frá Akurey í Landeyjum 1876 og þá að Oddsstöðum. Þar var Ögmundur Jónsson lausamaður.
Hún fæddi Jón barn þeirra í Norðurgarði 1877.
Barnsfaðir Þuríðar var Ögmundur Jónsson, þá lausamaður á Oddsstöðum, f. 30. desember 1838, d. 15. nóvember 1905.
Barn þeirra var
1. Jón Ögmundsson, f. 27. desember 1877, d. 9. mars 1901.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.