„Jón Hannesson (Steinmóðshúsi)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Jón Hannesson (Steinmóðshúsi)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 24: | Lína 24: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Sjómenn]] | [[Flokkur: Sjómenn]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Steinmóðshúsi]] | [[Flokkur: Íbúar í Steinmóðshúsi]] |
Útgáfa síðunnar 17. ágúst 2015 kl. 13:11
Jón Hannesson húsmaður í Steinmóðshúsi, vinnumaður, sjómaður frá Vallnatúni u. Eyjafjöllum, fæddist 1829 og lést 11. apríl 1890.
Foreldrar hans voru Hannes Jónsson bóndi í Vallnatúni og Efstakoti u. Eyjafjöllum, f. 1797 á Brekkum í Mýrdal, og kona hans Hildur Eiríksdóttir húsfreyja, f. 1793 í Steinum u. Eyjafjöllum.
Jón var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í Vallnatúni 1845 og 1850.
Hann var vinnumaður í Núpakoti u. Eyjafjöllum 1855, í Syðra-Hrútafellskoti 1860.
Jón fluttist undan Eyjafjöllum að Litlabæ 1866, vinnumaður þar á því ári, í Norðurgarði 1867 og húsmaður í Steinmóðshúsi 1868.
Jón kvæntist Sigríði 1868. Þá höfðu þau eignast Elínu Jóhönnu, sem þau misstu rúmlega tveggja mánaða gamla.
Bjarna Jóhannes eignuðust þau 1869.
Þau fluttust með Bjarna Jóhannes undir Eyjafjöll 1870, voru þar vinnufólk í Ysta-Skála á því ári.
Þau Sigríður fluttust til Suðurnesja á áttunda áratug aldarinnar og bjuggu um skeið í Keflavík. Jónína Sigríður fæddist syðra 1873 og Sigríður fluttist með hana austur undir Fjöll 1875.
Jón var kvæntur vinnumaður í Steinum 1880, en þá var Sigríður vinnukona í Varmahlíð. Hann var vinnumaður í Varmahlíð 1881, þegar Guðríður fæddist, en hún mun hafa dáið ung. Hann var á Rauðafelli með Sigríði konu sinni og Jónínu Sigríði 1882, á Hellum með þeim 1883.
Þau Sigríður skildu samvistir.
Jón fór til sjóróðra í Stórhólma í Leiru á Suðurnesjum og lést þar 11 apríl 1890, grafinn við Útskálakirkju.
Kona Jóns, (6. nóvember 1868, skildu samvistir), var Sigríður Steinmóðsdóttir húsfreyja frá Steinmóðshúsi f. 20. desember 1842, d. 12. febrúar 1924.
Börn þeirra hér:
1. Elín Jóhanna Jónsdóttir, f. 8. febrúar 1868, d. 24. apríl 1868, „dó af kýli“.
2. Bjarni Jóhannes Jónsson, f. 22. júlí 1869, d. 10. janúar 1960.
3. Guðríður Jónsdóttir, f. 29. júlí 1881, líklega dáið ung.
4. Jónína Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Keflavík og Reykjavík, f. 28. apríl 1878, d. 16. nóvember 1918.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.