„Jón Guðrúnarson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jón Guðrúnarson Jónsson''' vinnumaður fæddist 13. nóvember 1843 og lést 6. maí 1876.<br> Móðir hans var Guðrún Guðmundsdóttir...) |
m (Verndaði „Jón Guðrúnarson“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 15. október 2014 kl. 20:52
Jón Guðrúnarson Jónsson vinnumaður fæddist 13. nóvember 1843 og lést 6. maí 1876.
Móðir hans var Guðrún Guðmundsdóttir frá Steinmóðshúsi, f. 25. ágúst 1822, og Jón Jónsson, þá vinnumaður í Ólafshúsum. Jón neitaði faðernini. Jón yngri var því nefndur Guðrúnarson eða Guðrúnarson Jónsson í sóknarmannatölum, en þó stundum Jón Jónsson..
Jón var á fyrsta ári með móður sinni í Steinmóðshúsi 1843. Hann var þriggja ára með móður sinni hjá Sighvati Þóroddssyni ekkli í Helgahjalli 1845, með móður sinni hjá Elínu ömmu sinni í Steinmóðshúsi 1847-1853, með vinnukonunni móður sinni á Oddsstöðum 1854, með henni í Steinmóðshúsi 1855 og 1856, 14 ára hjá Elínu ömmu sinni 1857 og enn 1865.
Hann var vinnumaður í Garðinum 1867, vinnumaður á Vilborgarstöðum 1870, á Vesturhúsum 1871, á Löndum 1872, í Vanangri 1873 og 1874, í Kokkhúsi 1875.
Jón var ókvæntur og barnlaus.
Hann lést 1876 „af völdum ofdrykkju“.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.