„Einar Hallsson (Helgahjalli)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Einar Hallsson''' klénsmiður (járnsmiður) fæddist 2. ágúst 1805 á Herríðarhóli í Ásahreppi í Rang. og drukknaði 26. mars 1842.<br> Foreldrar hans voru Hallur Einarss...) |
m (Verndaði „Einar Hallsson (Helgahjalli)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. september 2014 kl. 15:56
Einar Hallsson klénsmiður (járnsmiður) fæddist 2. ágúst 1805 á Herríðarhóli í Ásahreppi í Rang. og drukknaði 26. mars 1842.
Foreldrar hans voru Hallur Einarsson bóndi á Herríðarhóli, f. 1752, d. 22. júlí 1819, og síðari kona hans Gunnvör Ásmundsdóttir húsfreyja, skírð 8. september 1781, d. 8. apríl 1834.
Einar var með foreldrum sínum á Herríðarhóli 1816.
Hann fluttist til Eyja 1837, vinnumaður að Ofanleiti, og Sigríður Eiríksdóttir fluttist til Eyja sama ár vinnukona á sama bæ.
Við giftingu þeirra 1840 var hann járnsmiður í Kornhól og hún vinnukona að Ofanleiti, en í lok árs voru þau búandi í Helgahjalli, í Tómthúsi við andlát Einars.
Einar fórst 1842 með Ellerti Schram skipstjóra og fimm öðrum mönnum.
Kona hans, (28. maí 1840), var Sigríður Eiríksdóttir húsfreyja, f. 1815, d. 24. nóvember 1890.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Einarsson, f. 3. október 1840. Hefur líklega dáið ungur.
2. Elísabet Einarsdóttir, f. 11. október 1841, d. 20. október 1841 úr ginklofa.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.