„Helga Jónsdóttir (Pétursborg)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Helga Jónsdóttir''' húsfreyja í Pétursborg, einnig skráð Steinshús, fæddist 1801 á Höskuldsstöðum í A-Hún.<br> Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi á ...)
 
m (Verndaði „Helga Jónsdóttir (Pétursborg)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 14. ágúst 2014 kl. 11:24

Helga Jónsdóttir húsfreyja í Pétursborg, einnig skráð Steinshús, fæddist 1801 á Höskuldsstöðum í A-Hún.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi á Höskuldsstöðum, en síðar á Ytra-Hóli í A-Húnavatnssýslu, f. 1775, d. 23. mars 1864, og fyrri kona hans Sigurlaug Jónasdóttir húsfreyja frá Höskuldsstöðum, f. 1780, d. 26. mars 1829.

Helga kom til Ofanleitis 1837, þá sögð 33 ára vinnukona.
Hún varð síðari kona Stefáns Ringsteds verslunarassistents, síðar verslunarstjóra.
Þau voru í Godthaab 1840 og 1841, en í PétursborgSteinshúsi 1842 og 1843.
Þau fóru úr Eyjum með dætur sínar til Danmerkur 1844, en voru komin til Reykjavíkur 1845, bjuggu þar í Knudtzonshúsi.
Fjölskyldan sneri til Eyja 1846 og þar var Ringsted verslunarstjóri um skeið, en hvarf með fjölskylduna til Hafnar 1847.

I. Maður Helgu, (1. október 1839), var Stefán Ringsted verslunarstjóri, f. 1805.
Börn þeirra hér:
1. Rebekka Beate, f. 8. september 1840, tvíburi.
2. Helga Sigurlaug, f. 8. september 1840, tvíburi.
3. Emilie Ingibjörg, f. 8. apríl 1842.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gamalt og nýtt. Útgefandi: Einar Sigurðsson. Vestmannaeyjum 1949-1952.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættir Austur-Húnvetninga. Guðmundur Sigurður Jóhannsson og Magnús Björnsson. Mál og mynd 1999.