„Jóhann Stefánsson (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Jóhann Stefánsson (Vilborgarstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Vinnumenn]] | [[Flokkur: Vinnumenn]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar á Vilborgarstöðum]] | [[Flokkur: Íbúar á Vilborgarstöðum]] |
Núverandi breyting frá og með 17. ágúst 2015 kl. 11:19
Jóhann Stefánsson frá Vilborgarstöðum fæddist 29. maí 1829.
Foreldrar hans voru Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 1791, d. 10. júní 1848, og líklega Stefán Ólafsson, sem var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1835, fráskilinn frá árinu 1817, f. 16. maí 1792, d. 3. apríl 1847.
Við skírn Jóhanns: „Móðir ....skilin frá manni“.
Jóhann var með móður sinni á Vilborgarstöðum 1835. Jóhanna móðir hans er þá sögð ógift, en Jón Pálsson maður hennar er þar húsbóndi og Katrín Þorsteinsdóttir er þar bústýra, en hún varð síðari kona Jóns. Jóhann er 5 ára og Sigríður systir hans 9 ára, bæði skráð Stefánsbörn, og Stefán Ólafsson er þar vinnumaður 55 ára. Öll eru þau á sama býlinu.
Við manntal 1840 er Jóhann skráður 11 ára undir nafninu Johann Johansen, og 1845 er hann skráður 16 ára vinnudrengur undir nafninu Johan Johansen. Hann finnst ekki síðan lífs né liðinn.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.