„Sigurður Vigfússon (Steinsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Sigurður Vigfússon (Steinsstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 11. mars 2014 kl. 20:47

Sigurður Vigfússon bóndi á Steinsstöðum fæddist 31. maí 1791 á Steig í Mýrdal og lést 15. apríl 1857 úr „langvarandi brjóstveiki“.
Foreldrar hans voru Vigfús Ólafsson bóndi á Steig og víðar í Mýrdal, f. 1759, d. 10. nóvember 1817, og kona hans Guðfinna Jónsdóttir húsfreyja, f. 1761.

Sigurður var með foreldrum sínum í Álftagróf 1801.
Hann var vinnumaður á Eystri-Sólheimum í Mýrdal 1817 eða fyrr til 1820.
Hann fór til Eyja 1820, var þar sjómaður og vinnumaður á Vesturhúsum. Þau Guðrún giftust 1824 og voru komin að Steinsstöðum 1825. Þar bjuggu þau síðan.
Eftir lát Guðrúnar bjó Sigurður með Halldóru og kvæntist henni 1849.

I. Fyrri kona hans, (5. september 1824), var Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, áður vinnukona á Vesturhúsum, f. 27. október 1794, d. 7. júlí 1848 „af innvortis veikindum“.
Börn þeirra hér:
1. Málfríður Sigurðardóttir, f. 12. ágúst 1824, d. 19. ágúst 1824 úr „Barnaveiki“, líklega ginklofi.
2. Hallgrímur Sigurðsson, f. 8. ágúst 1828, d. 11. ágúst 1828, dánarorsök ekki skráð.

II. Síðari kona Sigurðar, (3. október 1849), var Halldóra Jónsdóttir húsfreyja á Steinsstöðum, f. 10. október 1819, d. 24. mars 1883.
Barn þeirra var
3. Sigurður Sigurðsson, f. 16. mars 1850, d. 29. mars 1850 „af Barnaveikindum“.
Fósturdóttir Sigurðar, barn Halldóru var
4. Halldóra Samúelsdóttir, 19. september 1844.


Heimildir