„Sigurgeir Jónsson (Þorlaugargerði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(flokkar settir inn)
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Sigurgeir Jónsson fæddist 26. júní 1942 í Vestmannaeyjum.
Sigurgeir Jónsson fæddist 26. júní 1942 í Vestmannaeyjum. Sonur [[Jón Guðjónsson|Jóns Guðjónssonar]] frá [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], bónda og skipasmiðs í [[Þorlaugargerði eystra]] og [[Guðrún Jónsdóttir|Guðrúnar Jónsdóttur]] frá [[Suðurgarður|Suðurgarði]].  


Sigurgeir lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1965 og kenndi við [[Barnaskólínn í Vestmannaeyjum|Barnaskólann í Vestmannaeyjum]] og [[Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum|Gagnfræðaskólann]] til ársins 1982 þegar hann réðst sem kennari við [[Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum|Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum]] en sama ár lauk hann námi í II. stigi þess skóla. Áður hafði hann lokið prófi frá [[Vélskóli Vestmannaeyja|Vélskóla Vestmannaeyja]] árið 1960. Sigurgeir stundaði sjó, ýmist sem aðalstarf eða yfir sumartímann meðfram kennslu, í 30 ár. Þegar Stýrimannaskólinn sameinaðist [[Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum|Framhaldsskólanum]] árið 1997 var hann ráðinn sem kennari við Framhaldsskólann.
Sigurgeir stundaði ritstörf og blaðamennsku, m.a. á tímaritinu Vikunni, var ritstjóri [[Fylkir|Fylkis]], málgagns sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, 1967-1968, blaðamaður og prófarkalesari á vikublaðinu [[Fréttir|Fréttum]] um margra ára skeið. Hann var æskulýðsfulltrúi [[Vestmannaeyjabær|Vestmannaeyja]] 1978 til 1982 og menningarfulltrúi bæjarins 2003 til 2004.
Hann kvæntist árið 1967 [[Katrín Magnúsdóttir|Katrínu Magnúsdóttur]], úr Dalasýslu, kennara við [[Hamarsskóli|Hamarsskóla]] og eru börn þeirra fjögur; [[Jarl Sigurgeirsson|Jarl]] (1967) stýrimaður, [[Dís Sigurgeirsdóttir|Dís]] (1969) lögfræðingur, [[Hersir Sigurgeirsson|Hersir]] (1972) stærðfræðingur og [[Dögg Lára Sigurgeirsdóttir|Dögg Lára]] (1974) kennari. Fyrir átti Sigurgeir [[Fanney Sigurgeirsdóttir|Fanney]] (1965) bókasafnsfræðing.
Árið 1989 keyptu Sigurgeir og Katrín ritfanga og gjafavöruverslunina [[Oddurinn|Oddinn]] við Strandveg og ráku hana til ársins 1989 þegar þau seldu hana.
Árið 2001 byggðu þau sér íbúðarhús fyrir ofan hraun og nefndu það [[Gvendarhús]] eftir samnefndu býli er þar stóð áður en fór undir flugbrautina þegar hún var lengd til vesturs.
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Kennarar]]
[[Flokkur:Kennarar]]
[[Flokkur: Kaupmenn]]
[[Flokkur: Kaupmenn]]

Útgáfa síðunnar 29. nóvember 2005 kl. 10:38

Sigurgeir Jónsson fæddist 26. júní 1942 í Vestmannaeyjum. Sonur Jóns Guðjónssonar frá Oddsstöðum, bónda og skipasmiðs í Þorlaugargerði eystra og Guðrúnar Jónsdóttur frá Suðurgarði.

Sigurgeir lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1965 og kenndi við Barnaskólann í Vestmannaeyjum og Gagnfræðaskólann til ársins 1982 þegar hann réðst sem kennari við Stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum en sama ár lauk hann námi í II. stigi þess skóla. Áður hafði hann lokið prófi frá Vélskóla Vestmannaeyja árið 1960. Sigurgeir stundaði sjó, ýmist sem aðalstarf eða yfir sumartímann meðfram kennslu, í 30 ár. Þegar Stýrimannaskólinn sameinaðist Framhaldsskólanum árið 1997 var hann ráðinn sem kennari við Framhaldsskólann.

Sigurgeir stundaði ritstörf og blaðamennsku, m.a. á tímaritinu Vikunni, var ritstjóri Fylkis, málgagns sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, 1967-1968, blaðamaður og prófarkalesari á vikublaðinu Fréttum um margra ára skeið. Hann var æskulýðsfulltrúi Vestmannaeyja 1978 til 1982 og menningarfulltrúi bæjarins 2003 til 2004.

Hann kvæntist árið 1967 Katrínu Magnúsdóttur, úr Dalasýslu, kennara við Hamarsskóla og eru börn þeirra fjögur; Jarl (1967) stýrimaður, Dís (1969) lögfræðingur, Hersir (1972) stærðfræðingur og Dögg Lára (1974) kennari. Fyrir átti Sigurgeir Fanney (1965) bókasafnsfræðing.

Árið 1989 keyptu Sigurgeir og Katrín ritfanga og gjafavöruverslunina Oddinn við Strandveg og ráku hana til ársins 1989 þegar þau seldu hana.

Árið 2001 byggðu þau sér íbúðarhús fyrir ofan hraun og nefndu það Gvendarhús eftir samnefndu býli er þar stóð áður en fór undir flugbrautina þegar hún var lengd til vesturs.