„Elín Steinmóðsdóttir (Steinmóðshúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Elín Steinmóðsdóttir (Steinmóðshúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. apríl 2014 kl. 11:34

Elín Steinmóðsdóttir vinnukona frá Steinmóðshúsi fæddist 1836.
Foreldrar hennar voru Steinmóður Vigfússon þurrabúðarmaður, f. 1775, d. 28. júlí 1846, og kona hans Elín Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1796, d. 8. júlí 1876.

Elín var 8 ára í foreldrahúsum í Steinmóðsbæ 1845, með ekkjunni móður sinni þar 1850 og 1860 og enn 1870, ógift. Hún var ógift vinnukona á Kirkjubæ 1890, finnst ekki síðar á manntali.

I. Barnsfaðir Elínar var Jes Nicolai Thomsen verslunarstjóri í Godthaabsverslun, f. 7. nóvember 1840, d. 30. janúar 1919.
Barnið var
1. Guðmundur Jesson, síðar verkamaður á Litlu-Grund, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.
II. Barnsfaðir var Guðmundur Pétursson, f. 1836.
Barnið var
2. Steinmóður Guðmundsson „sterki“ kallaður, sjómaður, f. 15. maí 1860. Fór til Austfjarða.


Heimildir