„Bjarni Magnússon (Stakkagerði)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 16: | Lína 16: | ||
1. [[Hugbjörg Bjarnadóttir (Ottahúsi)|Hugborg Bjarnadóttir]], f. 29. nóvember | 1. [[Hugbjörg Bjarnadóttir (Ottahúsi)|Hugborg Bjarnadóttir]], f. 29. nóvember | ||
1846, d. 23. apríl 1851.<br> | 1846, d. 23. apríl 1851.<br> | ||
2. [[Rannveig Bjarnadóttir (Ottahúsi)|Rannveig Bjarnadóttir]], f. | 2. [[Rannveig Bjarnadóttir (Ottahúsi)|Rannveig Bjarnadóttir]], f. 1. febrúar 1848.<br> | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. |
Útgáfa síðunnar 29. október 2013 kl. 19:22
Bjarni Magnússon tómthúsmaður og sjómaður í Ottahúsi, Stakkagerði og Kirkjubæ fæddist 13. febrúar 1814 á Geirlandi á Síðu, fórst með Blíð 26. febrúar 1869.
Faðir hans var Magnús bóndi og húsmaður víða, en bóndi síðast á Kárastöðum í Landbroti, f. 1770, d. 23. júlí 1845, Jónsson, bónda í Hrútsstaðahjáleigu í Flóa, Þórarinssonar bónda og hreppstjóra á Hæringsstöðum í Stokkseyrarhreppi, f. 1687, Sigurðssonar, og konu Þórarins, Guðrúnar Björnsdóttur.
Móðir Magnúsar var Þorkatla, f. 1740, d. 1. febrúar 1818 á Heiði á Síðu, Sveinsdóttir.
Móðir Bjarna í Stakkagerði og kona Magnúsar Jónssonar var Rannveig húsfreyja, f. 1780 á Skaftárdal, d. 31. ágúst 1865 á Sléttabóli á Brunasandi í Hörglandshreppi, Sigurðardóttir bónda á Skaftárdal, f. 1737 þar, d. 31. ágúst 1885 þar, Sverrissonar bónda þar, f. 1687, Árnasonar, og konu Sverris, Rannveigar húsfreyju, f. 1700, líklega Jónsdóttur (V-Skaftf.).
Móðir Rannveigar og kona Sigurðar á Skaftárdal var Kolfinna húsfreyja, f. 1743 á Breiðabólsstað á Síðu, d. 18. desember 1819, Björnsdóttir bónda í Skál og Breiðabólsstað á Síðu, f. 1701, Eyjólfssonar, og ókunnrar konu Björns.
Bjarni var með foreldrum sínum, bændum á ýmsum bæjum, til ársins 1837. Hann var vinnumaður í Mörk 1837-1838, á prestsetrinu í Holti u. Eyjafjöllum 1840, en fór því næst til Eyja.
Hann var sjómaður í Ottahúsi 1845 með konu og tengdamóður sinni, tómthúsmaður þar 1850 með konu og tveim dætrum, þriggja og fjögurra ára, og Katrínu tengdamóður sinni.
Við manntal 1860 var hann húsbóndi í Stakkagerði með konu sinni, vinnukonu og tökubarni, en dætur hans voru þar ekki.
Hann bjó á Kirkjubæ við andlát 1869, og þar var Þóra ekkja hans niðursetningur 1870.
Kona Bjarna, (9. nóvember 1843), var Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Ottahúsi, Stakkagerði og Kirkjubæ, f. 1808 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, var á lífi 1870.
Börn þeirra 1850:
1. Hugborg Bjarnadóttir, f. 29. nóvember
1846, d. 23. apríl 1851.
2. Rannveig Bjarnadóttir, f. 1. febrúar 1848.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum: Útilegan mikla.
- Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.