„Guðmundur Karlsson (Reykholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Glumur færði Guðmundur Karlsson á Guðmundur Karlsson (Reykholti)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 16. október 2013 kl. 22:17
Guðmundur Karlsson fæddist í Vestmannaeyjum þann 9. júní árið 1936. Hann var alþingismaður Vestmannaeyja á árunum 1978-1983. Hann var kosinn af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi 1978 og var landskjörinn þingmaður 1979. Foreldrar hans eru Karl Magnús Guðmundsson skipstjóri og útgerðarmaður, og Unnur Jónsdóttir. Guðmundur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lagði stund á lögfræði um tíma, en gerðist svo verksmiðjustjóri hjá Vinnslustöðinni hf. og síðar framkvæmdastjóri fyrir Fiskiðjuna hf. í Vestmannaeyjum árið 1967-1992. Guðmundur var í framkvæmdastjórn í Vestmannaeyjum fyrir stjórn Viðlagasjóðs á meðan eldgosið á Heimaey stóð yfir og síðar við hreinsun bæjarins af ösku og gjalli að gosinu loknu. Hann var framkvæmdastjóri fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í Tokyo í Japan, Iceland Sea-Products Co., Ltd., frá 1974 til 1975. Þá var Guðmundur formaður Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum 1965—1966 og bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum 1970—1974.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.