„Guðmundur Pétursson (Elínarhúsi)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 14: | Lína 14: | ||
III. Barnsmóðir Guðmundar var [[Elín Steinmóðsdóttir (Steinmóðshúsi)|Elín Steinmóðsdóttir]] frá [[Steinmóðshús]]i, f. 1836.
| III. Barnsmóðir Guðmundar var [[Elín Steinmóðsdóttir (Steinmóðshúsi)|Elín Steinmóðsdóttir]] frá [[Steinmóðshús]]i, f. 1836.

Barnið var:
| Barnið var:

[[Steinmóður Guðmundsson ( | [[Steinmóður Guðmundsson (sterki)|Steinmóður Guðmundsson]], f. 15. maí 1860, var kallaður „Steinmóður sterki“. Hann var sjómaður á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] 1901, fór síðar til Austfjarða og var vinnumaður á Króki í Fáskrúðsfirði 1910.

{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. |
Útgáfa síðunnar 29. október 2013 kl. 21:16
Guðmundur Pétursson sjómaður frá Elínarhúsi fæddist 1836 í Presthúsum í Mýrdal, var á lífi 1890, d. líklega 1898.
Foreldrar hans voru Pétur Jónsson sjómaður í Elínarhúsi, f. 1. október 1800, d. 15. maí 1859, og kona hans Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1806 í Álftagróf í Mýrdal, d. 28. febrúar 1880.
Guðmundur var með foreldrum sínum 1845 og 1850, vinnumaður á Gjábakka 1855, 24 ára ókvæntur húsbóndi með bústýrunni Rannveigu Ögmundsdóttur í Smiðjunni 1860, kvæntur í Elínarhúsi 1870, sagður skilinn vinnumaður í Frydendal 1890.
Guðmundur var hermaður í Herfylkingunni.
I. Kona Guðmundar var Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja.
Börn þeirra voru tveir synir, sem dóu ungir.
II. Barnsmóðir Guðmundar var Margrét Arnbjörnsdóttir, síðar húsfreyja í Nýjahúsi, f. 17. júní 1825 í Eyvindarhólasókn, d. 19. október 1911.
Barn þeirra var:
Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Framnesi, f. 31. ágúst 1858, á lífi 1920.
III. Barnsmóðir Guðmundar var Elín Steinmóðsdóttir frá Steinmóðshúsi, f. 1836.
Barnið var:
Steinmóður Guðmundsson, f. 15. maí 1860, var kallaður „Steinmóður sterki“. Hann var sjómaður á Kirkjubæ 1901, fór síðar til Austfjarða og var vinnumaður á Króki í Fáskrúðsfirði 1910.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.