„Sigfús Maríus Johnsen“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Sigfus m johnsen.jpg|thumb|400 px|right|[[Sigfús | [[Mynd:Sigfus m johnsen.jpg|thumb|400 px|right|''[[Sigfús M. Johnsen]] bæjarfógeti.]]''[[Mynd:Jartrudur1.jpeg|thumb|400 px|right|[[Jarþrúður P. Johnsen|''Jarþrúður Johnsen]], kona [[Sigfús Marius Johnsen|Sigfúsar M. Johnsen]] bæjarfógeta.]]'' | ||
{{sagasmj}} | {{sagasmj}} | ||
'''Sigfús Maríus Jóhannsson Johnsen''' bæjarfógeti og sýslumaður fæddist í Eyjum 28. marz 1886 og lézt 9. júní 1974.

Foreldrar hans voru [[Jóhann J. Johnsen | Jóhann Jörgen Johnsen]], f. 1847 og k.h. [[Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen | Anna Sigríður Árnadóttir]], f. 1855. | |||
::::::::::::Lífsferill | |||
Sigfús varð stúdent 1907, cand. phil. í Kaupmannahöfn 1908, lauk lögfræðiprófi frá Háskólanum í K.höfn 1914, varð yfirdómslögmaður 1914-18.
| Sigfús varð stúdent 1907, cand. phil. í Kaupmannahöfn 1908, lauk lögfræðiprófi frá Háskólanum í K.höfn 1914, varð yfirdómslögmaður 1914-18.

Hann var aðstoðarmaður í Stjórnarskrifstofu Íslands í K.höfn um skeið að loknu prófi. Var settur dómari tímabundið í Vestmannaeyjum 1916, kenndi við unglingaskóla [[Björn Hermann Jónsson | Björns H. Jónssonar]] í Eyjum 1916-17, var stundakennari við Verzlunarskólann og kenndi verzlunarrétt 1922-25, kenndi við Iðnskólann í Rvk 1925-40.
| Hann var aðstoðarmaður í Stjórnarskrifstofu Íslands í K.höfn um skeið að loknu prófi. Var settur dómari tímabundið í Vestmannaeyjum 1916, kenndi við unglingaskóla [[Björn Hermann Jónsson | Björns H. Jónssonar]] í Eyjum 1916-17, var stundakennari við Verzlunarskólann og kenndi verzlunarrétt 1922-25, kenndi við Iðnskólann í Rvk 1925-40.

Lína 28: | Lína 30: | ||
''Herleidda stúlkan'', 1960.
| ''Herleidda stúlkan'', 1960.

''Uppi var Breki'', 1968.
| ''Uppi var Breki'', 1968.

Hann reit sjálfsævisögu sína:
| Hann reit sjálfsævisögu sína:

''Yfir fold og flæði'', 1972. | ''Yfir fold og flæði'', 1972. | ||
Maki I, barnsmóðir: [[Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir]], f. 1887.
| Maki I, barnsmóðir: [[Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir]], f. 1887.

Lína 36: | Lína 38: | ||
Foreldrar: Pétur prestur á Hálsi í Fnjóskadal, síðar á Kálfafellsstað í Suðursveit, f. 12. júní 1850, d. 28. apríl 1926, Jóns dómstjóra Péturssonar prests á Víðivöllum Péturssonar og fyrri konu Jóns dómstjóra, Jóhönnu Sofíu Bogadóttur stúdents að Staðarfelli, Benediktssonar. Móðir Jarþrúðar og kona Péturs prests var Helga Skúladóttir á Sigríðarstöðum Kristjánssonar.
| Foreldrar: Pétur prestur á Hálsi í Fnjóskadal, síðar á Kálfafellsstað í Suðursveit, f. 12. júní 1850, d. 28. apríl 1926, Jóns dómstjóra Péturssonar prests á Víðivöllum Péturssonar og fyrri konu Jóns dómstjóra, Jóhönnu Sofíu Bogadóttur stúdents að Staðarfelli, Benediktssonar. Móðir Jarþrúðar og kona Péturs prests var Helga Skúladóttir á Sigríðarstöðum Kristjánssonar.

Þau Jarþrúður og Sigfús eignuðust ekki börn.
| Þau Jarþrúður og Sigfús eignuðust ekki börn.

Sjá nánar [[Blik 1969]]: [[Blik 1969|Hjónin Sigfús M. Johnsen og Jarþrúður P. Johnsen]] | |||
Hinn 18. janúar 1967 gáfu þau Jarþrúður bænum málverkasafn, sem í voru m.a. 34 málverk eftir Jóhannes Kjarval og er safnið nú grunnurinn að listasafni bæjarins. Svo átti að heita, að þau seldu bænum málverkin á kr. 500.000,00, en 40% þeirrar upphæðar skyldi renna í sérstakan sjóð til eflingar og viðgangs listasafninu.

Sjá nánar [[Blik 1969]]: [[Blik 1969|Hjónin Sigfús M. Johnsen og Jarþrúður P. Johnsen]]

{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
Lína 44: | Lína 49: | ||
*''Kennaratal á Íslandi''. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988. | *''Kennaratal á Íslandi''. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988. | ||
*Páll Eggert Ólason: ''Íslenzkar æviskrár''. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1948-1976. | *Páll Eggert Ólason: ''Íslenzkar æviskrár''. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1948-1976. | ||
*''Blik, ársrit Vestmannaeyja 1969.}} | *''[[Blik 1969|Blik]], ársrit Vestmannaeyja 1969.}} | ||
Útgáfa síðunnar 13. maí 2012 kl. 21:11
Saga Vestmannaeyja efnisyfirlit
Sigfús Maríus Jóhannsson Johnsen bæjarfógeti og sýslumaður fæddist í Eyjum 28. marz 1886 og lézt 9. júní 1974.
Foreldrar hans voru Jóhann Jörgen Johnsen, f. 1847 og k.h. Anna Sigríður Árnadóttir, f. 1855.
- Lífsferill
Sigfús varð stúdent 1907, cand. phil. í Kaupmannahöfn 1908, lauk lögfræðiprófi frá Háskólanum í K.höfn 1914, varð yfirdómslögmaður 1914-18.
Hann var aðstoðarmaður í Stjórnarskrifstofu Íslands í K.höfn um skeið að loknu prófi. Var settur dómari tímabundið í Vestmannaeyjum 1916, kenndi við unglingaskóla Björns H. Jónssonar í Eyjum 1916-17, var stundakennari við Verzlunarskólann og kenndi verzlunarrétt 1922-25, kenndi við Iðnskólann í Rvk 1925-40.
Hann var settur dómari í Eyjum 1916, var fulltrúi í Stjórnarráðinu 1917-40, hæstaréttarritari 1929-36 og sá um útgáfu hæstaréttardóma og vann jafnframt við Hagstofu Íslands. Honum var falið 1924 að hafa eftirlit með fiskveiðilöggjöfinni frá 1922 og dvaldist þá um hríð norðanlands; settur sama ár setufógeti og setudómari í Skagafirði í ýmsum málum. Var endurskoðandi Áfengisverzlunar Ríkisins 1924-28; kosinn var hann í lóðamerkjadóm Reykjavíkur 1929.
Sigfús var skipaður bæjarfógeti í Eyjum 11. október 1940 og gegndi starfanum til 1949. Fluttist hann þá til Reykjavíkur og starfaði sem fulltrúi í fjármálaráðuneytinu til 1957. Síðar var hann þrjú ár í Danmörku við fræðistörf, einkum rannsóknir á ættum Íslendinga í Danmörku.
Sigfús var mikill fræðimaður um sögu Eyjanna og mannlíf þar. Nefna má stærsta verk hans:
- Saga Vestmannaeyja í tveim bindum, gefið út 1946 og endurútgefið litprentað 1989.
Þá má nefna:
- Kláus Eyjólfsson lögsagnari, 300 ára minning, 1927.
- Þættir úr menningarsögu Vestmannaeyja í Andvara 1927-29.
- Hákarlaveiðar í Vestmannaeyjum, í sama 1932.
- Um menn, sem hrapað hafa í björgum í Vestmannaeyjum, í Blöndu IV.
- Greinar í Lesbók Morgunblaðsins, einkum varðandi sögulegan fróðleik úr Eyjum.
- Fyrstu mormónarnir, sem skírðir voru á Íslandi, í Bliki 1961.
- Ættir Íslendinga í Danmörku (í handriti).
- Ættir Vestmannaeyinga (í handriti).
- Rit um barnafræðslu á Íslandi 1910-1920 (í handriti).
- Ferðaþættir í Fálkanum.
Auk þessa skrifaði hann skáldsögur:
Herleidda stúlkan, 1960.
Uppi var Breki, 1968.
Hann reit sjálfsævisögu sína:
Yfir fold og flæði, 1972.
Maki I, barnsmóðir: Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir, f. 1887.
Barn: Baldur Garðar Johnsen, f. 1910.
Maki II (12. júní 1915): Jarþrúður Pétursdóttir, f. 3. júní 1890, d. 9. október 1969.
Foreldrar: Pétur prestur á Hálsi í Fnjóskadal, síðar á Kálfafellsstað í Suðursveit, f. 12. júní 1850, d. 28. apríl 1926, Jóns dómstjóra Péturssonar prests á Víðivöllum Péturssonar og fyrri konu Jóns dómstjóra, Jóhönnu Sofíu Bogadóttur stúdents að Staðarfelli, Benediktssonar. Móðir Jarþrúðar og kona Péturs prests var Helga Skúladóttir á Sigríðarstöðum Kristjánssonar.
Þau Jarþrúður og Sigfús eignuðust ekki börn.
Hinn 18. janúar 1967 gáfu þau Jarþrúður bænum málverkasafn, sem í voru m.a. 34 málverk eftir Jóhannes Kjarval og er safnið nú grunnurinn að listasafni bæjarins. Svo átti að heita, að þau seldu bænum málverkin á kr. 500.000,00, en 40% þeirrar upphæðar skyldi renna í sérstakan sjóð til eflingar og viðgangs listasafninu.
Sjá nánar Blik 1969: Hjónin Sigfús M. Johnsen og Jarþrúður P. Johnsen
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Brynleifur Tobíasson: Hver er maðurinn. Reykjavík: Fagurskinna, 1944.
- Íslenzkir samtíðarmenn. Reykjavík: Bókaútgáfan Samtíðarmenn, 1965-1967.
- Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988.
- Páll Eggert Ólason: Íslenzkar æviskrár. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1948-1976.
- Blik, ársrit Vestmannaeyja 1969.