„Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Höfuðlausi sigamaðurinn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Höfuðlausi sigamaðurinn“ [edit=sysop:move=sysop])
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 8. júní 2012 kl. 16:19


Höfuðlausi sigamaðurinn.


Fyrir neðan Molda í Álsey, er svartfuglabæli allstórt, sem sjaldan hefur verið farið á eftir að eftirfarandi atburður gjörðist:
Fyrir löngu voru nokkrir menn við sig í Álsey. Fór einn þeirra á þetta bæli, en þegar hann var dreginn upp aftur, vantaði höfuðuð á hann. Ekki vissu menn með hverjum hætti höfuðið hafði farið af honum, en eftir þetta voru sigamenn tregir til að fara á þetta bæli.
Nokkru fyrir síðustu aldamót voru þeir Magnús Vigfússon frá Presthúsum og Sigurður Sigurðsson frá Kirkjubæ við aðsókn í Álsey. Vildi Sigurður fara á bælið, en Magnús aftraði því. Sagðist hann ekki vilja fá hann hauslausan upp aftur.
(Sögn Sigurðar Sigurðssonar).