„Blik 1969/Gamli Gerðisbærinn og hjallur“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Blik 1969/Gamli Gerðisbærinn og hjallur“ [edit=sysop:move=sysop]) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 25. september 2010 kl. 20:59
Óskar byggingarfulltrúi Kárason hefur að undanförnu unnið stórvægilegt menningarstarf fyrir Byggðarsafn Vestmannaeyja. Hann hefur teiknað gömul hús, sem einu sinni voru kunn hér í Eyjum, og stuðzt við lýsingar af þeim, t.d. í Sögu Vestmannaeyja eftir S.M.J. Hér kemur mynd af einu þessara húsa, þ.e. gamla bæjarhúsinu í Gerði. Enn sjást leifar þess. Það var byggt 1901 og þar bjó Jón bóndi og formaður Jónsson um árabil. — Stefán V. Þorsteinsson, sonur minn, hefnr dregið upp frummynd byggingarfulltrúans með tússi, svo að hún komi skýrar fram í bókinni. Kann ég þeim báðum alúðarþakkir fyrir starfið. Sjá mynd af bænum í Bliki 1959, bls. 110.