„Hinrik G. Jónsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 9: | Lína 9: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Haraldur Guðnason | * Haraldur Guðnason. ''Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár'', II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991. | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Bæjarstjórar]] | [[Flokkur:Bæjarstjórar]] |
Útgáfa síðunnar 15. ágúst 2005 kl. 16:27
Hinrik G. Jónsson fæddist 2. janúar 1908 í Vestmannaeyjum og var nefndur Hinrik Guðmundur. Foreldrar hans voru Jón Hinriksson framkvæmdarstjóri og bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og kona hans Ingibjörg Rannveig Theódórsdóttir Mathiesen frá Hafnarfirði.
Hinrik lauk stúdentsprófi í Reykjavík árið 1928 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1936. Hann var framkvæmdastjóri Kf. Fram í Eyjum 1929-1933. Málflutningsmaður í Vestmannaeyjum frá 1. júlí 1936 þar til hann var kosinn bæjarstjóri í mars 1938. Eftir bæjarstjórastörf sín vann hann við lögfræðistörf í Eyjum í tvö ár. Þá lá leið hans í Neskaupsstað þar se hann var bæjarfógeti í tvö ár. Hinrik sýslumaður var sýslumaður Snæfells- og Hnappadalssýslu árið 1949 og gegndi því embætti til æviloka.
Hann var í stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja 1930-1947 ásamt því að gegna ýmsum trunaðarstörfum hér í Eyjum og á öðrum stöðum.
Kona Hinriks hét Unnur Magnúsdóttir. Hinrik lést 19. mars 1965.
Heimildir
- Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.