„Blik 1969/Minningarnar“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: ::'''MAGNÚS Þ. JAKOBSSON''' :::'''Minningarnar'''<br> :::( Sonnetta ) ::Ég bind í huga bjartar, liðnar tíðir, <br> ::er bárugjálfur lék við fjörusandinn, <br> ::og j...)
 
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. nóvember 2009 kl. 21:41

MAGNÚS Þ. JAKOBSSON
Minningarnar
( Sonnetta )
Ég bind í huga bjartar, liðnar tíðir,
er bárugjálfur lék við fjörusandinn,
og jörðin hvít, en aðeins svalur andinn,
sem andlit strauk, að glaðir voru lýðir.
Og barnahópar bæjunum af, fríðir,
sér brugðu’ á leik í snjónum, það var gaman,
og léku sér hin ljúfu kvöld þar saman,
er lífið hló, — en haldið heim um síðir.
Stjörnuljósin blikuðu í blænum,
og bjartur máni skein í sínu veldi,
og töfrum sló á fjall og fjörusteina.
Ljómi þeirra lyfti litla bænum,¹
sem lá þar hljóður vafinn vetrarfeldi,
svo langt, að mátti hann af hafi greina.

¹ Þ. e.: þorp.