„Blik 1939, 6. tbl./Söngur Sveins“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
m (Verndaði „Blik 1939, 6. tbl./Söngur Sveins“ [edit=sysop:move=sysop]) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 22: | Lína 22: | ||
::::::::Ég veit að gæfan bíður mín handan jökla og heiða.<br> | ::::::::Ég veit að gæfan bíður mín handan jökla og heiða.<br> | ||
::::::::::Og hvergi nema þar, — nema þar.<br> | ::::::::::Og hvergi nema þar, — nema þar.<br> | ||
{{Blik}} |
Útgáfa síðunnar 22. október 2009 kl. 15:20
Úr söngleiknum: „Í brekkunni við fossinn.“
Loftur Guðmundsson, kennari:
- Söngur Sveins.
- Í blámóðu fjarlægðar blika tindar fjalla
- og bjarma slær á jöklanna silfurstalla.
- Úr blámóðu fjarlægðar hug minn heilla og
- kalla hljómþýðar raddir ... Af stað ... Af stað.
- Í blámóðu fjarlægðar býr svo margt í leynum.
- Þar bjóða æfintýrin sitt gull þeim einum
- sem hræðist ekki veglausar auðnir hrauns og heiða.
- Hug minn töfrar það. — Aðeins það.
- Hug minn töfrar það. — Aðeins það.
- Í blámóðu fjarlægðar blika tindar fjalla
- Hvað stoðar þeim að vona, sem hýma stöðugt heima. —
- — Í huganum láta sig gullið dreyma.
- Þeim einum sem ei hikar við að halda tæpar leiðir
- hamingjan veitir sitt glæsta svar.
- Ég hræðist ekki fjöllin, hindranir og þrautir.
- Hugdjarfur ég ryð mínar eigin brautir.
- Ég veit að gæfan bíður mín handan jökla og heiða.
- Og hvergi nema þar, — nema þar.
- Og hvergi nema þar, — nema þar.
- Hvað stoðar þeim að vona, sem hýma stöðugt heima. —