„Sigurjón Auðunsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 8: | Lína 8: | ||
Kona Sigurjóns var [[Sigríður Nikulásdóttir]], f. 18. júlí 1914. Þau bjuggu á [[Haukaberg]]i við [[Vestmannabraut]] og á [[Austurvegur 20|Austurvegi 20]]. Síðast bjó Sigurjón í Kópavogi.<br> | Kona Sigurjóns var [[Sigríður Nikulásdóttir]], f. 18. júlí 1914. Þau bjuggu á [[Haukaberg]]i við [[Vestmannabraut]] og á [[Austurvegur 20|Austurvegi 20]]. Síðast bjó Sigurjón í Kópavogi.<br> | ||
Börn þeirra Sigríðar voru [[Gylfi Sigurjónsson|Gylfi]], [[Aðalsteinn Sigurjónsson|Aðalsteinn]] og [[Ingibjörg Sigurjónsdóttir|Ingibjörg]]. | Börn þeirra Sigríðar voru [[Gylfi Sigurjónsson|Gylfi]], [[Aðalsteinn Sigurjónsson|Aðalsteinn]] og [[Ingibjörg Sigurjónsdóttir|Ingibjörg]]. | ||
== Myndir == | |||
<Gallery> | |||
Mynd:Svea Gestur.jpg | |||
Mynd:Kaffipása-Ísfélagið '58.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 12881.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 14799.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 14800.jpg | |||
Mynd:KG-mannamyndir 14801.jpg | |||
Mynd:Mynd-Mynd-KG-mannamyndir 17717.jpg | |||
Mynd:Mynd-Mynd-tib-mannamyndir 17791.jpg | |||
</gallery> | |||
{{Heimildir| | |||
*Björn Magnússon. ''Vestur-Skaftfellingar''. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970–1973. | |||
*Pers. | |||
*Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum}} | |||
[[Flokkur:Formenn]] | [[Flokkur:Formenn]] | ||
[[Flokkur:Verkstjórar]] | [[Flokkur:Verkstjórar]] | ||
Lína 14: | Lína 35: | ||
[[Flokkur:Íbúar við Vestmannabraut]] | [[Flokkur:Íbúar við Vestmannabraut]] | ||
[[Flokkur:Íbúar við Austurveg]] | [[Flokkur:Íbúar við Austurveg]] | ||
Útgáfa síðunnar 12. júlí 2012 kl. 14:32
Sigurjón Auðunsson fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu 4. apríl 1917 og lést 20. febrúar 2004.
Foreldrar hans voru Auðunn Oddsson og Steinunn Sigríður Gestsdóttir.
Sigurjón var með foreldrum sínum í Skálmarbæ í Álftaveri 1918, á Snæbýli í Skaftártungu 1918-1919, hjá þeim í Reykjavík 1919-1924, í Eyjum 1924 og lengur. Hann var formaður í Eyjum, var með m/b Óðinn á sumarsíld 1940, með Gulltopp 1941, Erling I 1942-1944 og Veigu 1945-1948. Verkstjóri var hann lengi, um skeið hjá Bæjarútgerðinni og lengi hjá Ísfélaginu. Hann þótti reglusamur, með gott verksvit og skipulag og dugandi í hverju starfi.
Hann átti fjögur systkini, þau Gest, Harald, Bárð og Magneu Ernu.
Kona Sigurjóns var Sigríður Nikulásdóttir, f. 18. júlí 1914. Þau bjuggu á Haukabergi við Vestmannabraut og á Austurvegi 20. Síðast bjó Sigurjón í Kópavogi.
Börn þeirra Sigríðar voru Gylfi, Aðalsteinn og Ingibjörg.
Myndir
Heimildir
- Björn Magnússon. Vestur-Skaftfellingar. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970–1973.
- Pers.
- Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum