„Magnús Tómasson (Hrafnabjörgum)“: Munur á milli breytinga
m (Grísli Eyjólfsson br.) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 23: | Lína 23: | ||
*[[Þorsteinn Þ. Víglundsson]]: Sína á Vesturhúsum, ''[[Blik]]'', 1962. | *[[Þorsteinn Þ. Víglundsson]]: Sína á Vesturhúsum, ''[[Blik]]'', 1962. | ||
*''Ættir Austfirðinga''. | *''Ættir Austfirðinga''. | ||
* Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950. | * [[Óskar Kárason]]. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950. | ||
* Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.}} | * [[Gísli Eyjólfsson (yngri)|Gísli Eyjólfsson]] frá [[Bessastaðir|Bessastöðum]].}} | ||
[[Flokkur:Formenn]] | [[Flokkur:Formenn]] |
Útgáfa síðunnar 14. september 2012 kl. 20:37
Fullu nafni hét hann Jón Magnús Tómasson, var fæddur 10. sept. 1896 og lést 1. mars 1977. Magnús var kunnur trillusjómaður í Eyjum, formaður og fisksali.
Magnúsi var komið í fóstur þriggja vikna gömlum til hjónanna í Gerði, Jóns Jónssonar og Guðbjargar Björnsdóttur. Hjá þeim var hann til fullorðinsára.
Magnús bjó að Hrafnabjörgum við Hásteinsveg og fékk viðurnefni sem dregið er af húsnafninu, Mangi krumm og stundum Mangi Krummó.
Foreldrar hans voru Tómas Ólafsson kenndur við Nýborg, f. 1869 og barnsmóðir hans Magnúsína Magnúsdóttir, f. 1867.
Kona: Kristín Björg Jónsdóttir húsfreyja, f. á Vattarnesi við Reyðarfjörð 23. desember 1898, d. í Eyjum 17. september 1935. Kristín Björg lézt skömmu eftir fæðingu síðasta barns síns.
Börn þeirra hjóna voru:
Jóna Karólína, f. 10. júní 1922.
Jón Guðbjörn, f. 9. ágúst 1923.
Jón Berg Halldórsson, f. 1. júlí 1935.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Magnús:
- Maggi þéttur flóðs í fang
- færir trillu greiða,
- strangan þegar straumavang
- stefnir einn til veiða.
Heimildir
- Jón Berg Halldórsson.
- Kennaratal á Íslandi.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson: Sína á Vesturhúsum, Blik, 1962.
- Ættir Austfirðinga.
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.