„Jóhann Bjarnasen (Kornhól)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Jóhann Bjarnasen á Jóhann Bjarnasen (Kornhól)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 17. júlí 2014 kl. 22:18
Jóhann Bjarnasen var fæddur í Skagafirði árið 1810. Kona hans var Sigríður Jónsdóttir fædd 1816. Þau eignuðust fjögur börn.
Þessi hjón fluttust til Vestmannaeyja árið 1837 og brátt gerðist Jóhann verslunarstjóri í Vestmannaeyjum.
Hjónin settust að í húsinu Sjólyst við Strandveg 41 og bjuggu þar fyrstu árin. Síðar fluttust þau í húseign sem hét Kornhóll. Það hús stóð austan við Skansinn.
Sigríður lést árið 1842 og Jóhann 1845.
Meðal barna þeirra var Jóhann Pétur Bjarnasen verzlunarstjóri, f. 1835.
Heimildir
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1976.
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja I. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja, 1946, bls 286