„Hlíðarhús“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (myndir) |
||
Lína 2: | Lína 2: | ||
[[Mynd:Hlíðarhus.jpg|thumb|250px|Hlíðarhús fremst, þá talið frá vinstri: Strönd Veggur Hruni, Bjarmi, Hóll, London og Þingvellir.]] | [[Mynd:Hlíðarhus.jpg|thumb|250px|Hlíðarhús fremst, þá talið frá vinstri: Strönd Veggur Hruni, Bjarmi, Hóll, London og Þingvellir.]] | ||
[[Mynd:Miðstræti.JPG|thumb|250px|Frá vinstri Strönd, Hruni, Veggur, Hóll, London, og fremst er Hlíðarhús.]] | [[Mynd:Miðstræti.JPG|thumb|250px|Frá vinstri Strönd, Hruni, Veggur, Hóll, London, og fremst er Hlíðarhús.]] | ||
[[Mynd:Joi a hol.jpg|thumb|250px|Jóhann Gíslason]] | |||
[[Mynd:Sigga i hlidarhusum.jpg|thumb|250px|Sigríður Bergsdóttir]] | |||
Húsið '''Hlíðarhús''' var rifið 1978 og stóð við [[Miðstræti]] 5b. Fyrra nafn hússins var [[Jónshús]] síðar var húsið kallað [[Hóll (Miðstræti)|Hóll]] en síðar reisti sr. Jes A. Gíslason hús undir því heiti við [[Miðstræti]]. | Húsið '''Hlíðarhús''' var rifið 1978 og stóð við [[Miðstræti]] 5b. Fyrra nafn hússins var [[Jónshús]] síðar var húsið kallað [[Hóll (Miðstræti)|Hóll]] en síðar reisti sr. Jes A. Gíslason hús undir því heiti við [[Miðstræti]]. | ||
Útgáfa síðunnar 16. apríl 2008 kl. 08:22
Húsið Hlíðarhús var rifið 1978 og stóð við Miðstræti 5b. Fyrra nafn hússins var Jónshús síðar var húsið kallað Hóll en síðar reisti sr. Jes A. Gíslason hús undir því heiti við Miðstræti.
Um 1880 byrjuðu Eyjamenn sjálfir að panta vörur erlendis frá og mynduðu með sér félagsskap. Mjög lítið varð samt úr framkvæmdum vegna mótspyrnu kaupmanna. Gísli Stefánsson í Hlíðarhúsi, Ólafssonar stúdents í Selkoti, byrjaði verslunarútsölu i Hlíðarhúsi, íbúðahúsi sínu, fyrir Þorlák Ó Johnson kaupmann í Reykjavik, en frá 1885 rak Gísli verslun sjálfur. Sigldi hann utan og keypti vörur. Með þessari verslunarstofnun, er að vísu var smáverslun, var athyglisvert spor stigið í viðreisnaráttina. Gísli hafði áður veitt kaupfélagsskapnum forstöðu. Eftir dauða Gísla Stefánssonar 1904 lagðist verslun hans alveg niður, er var svipuð og borgaraverslanir þær, er um þessar mundir risu upp víðar. Eigi sést að verslunarleyfisbréf eða borgarabréf hafi verið gefið út.
Í Hlíðarhúsi var síðan eftir 1904 tekið á móti erlendum sjúklingum um nokkur ár hjá frú Soffíu Andersdóttur konu Gísla Stefánssonar. En nú var komið hér sjúkrahús, Frakkneska sjúkrahúsið, er þó eigi var tekið til almennrar notkunar fyrr en seinna.
Heimildir
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja, I. og II. bindi. Reykjavík: Fjölsýn forlag, 1989.
- Myndin er úr myndasafni Þóris Óskarssonar er frá um 1920.