„Gjábakki-vestri“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 17: | Lína 17: | ||
{{Byggðin undir hrauninu}} | {{Byggðin undir hrauninu}} | ||
[[Flokkur:Bakkastígur]] | [[Flokkur:Bakkastígur]] | ||
[[Flokkur:Hús sem fóru undir hraun]] | [[Flokkur:Hús sem fóru undir hraun]] |
Útgáfa síðunnar 10. júlí 2007 kl. 11:36
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Gjábakki“
Húsið Gjábakki-vestri stóð við Bakkastíg 17, vestur af Brimnesi. Það fór undir hraun 1973. Á ofanverðri 19. öld bjuggu á Gjábakka-vestri Ingimundur Jónsson og Margrét Jónsdóttir, foreldrar Kristjáns í Klöpp, Jóns í Mandal og Þórönnu ljósmóður í Nýborg. Ingimundur sat jörðina í rúmlega hálfa öld og byggði það hús sem fór undir hraunið. Þarna bjó lengi Gunnlaugur Sigurðsson formaður ásamt konu sinni Elísabetu Arnoddsdóttur og stórum barnahópi þeirra en níu þeirra komust til fullorðinsára. Mikill ættbogi er frá þeim Gunnlaugi og Elísabetu.
Þegar gaus, 23 janúar 1973, bjuggu á Gjábakka-vestri systkinin Sigurbjörg og Jón Gunnlaugsbörn.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Nýborgarheimilið, Blik 1960.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.