„Vigfús Sigurðsson (Pétursborg)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 9: | Lína 9: | ||
Mynd til vinstri: Vigfús á efri árum við [[Miðhúsalaug|Sundlaugina]].<br> | Mynd til vinstri: Vigfús á efri árum við [[Miðhúsalaug|Sundlaugina]].<br> | ||
Ljósm. Sigurgeir. | Ljósm. Sigurgeir. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Guðmundur Vigfússon. Stokkseyrarveðrið 9. janúar 1926. ''Sjómannadagsblaðið 1982.'' 31. árg. | * Guðmundur Vigfússon. Stokkseyrarveðrið 9. janúar 1926. ''Sjómannadagsblaðið 1982.'' 31. árg. |
Útgáfa síðunnar 8. júlí 2007 kl. 12:17
![](/images/thumb/1/17/Vigfus1.jpg/250px-Vigfus1.jpg)
Vigfús Sigurðsson, Pétursborg, fæddist 24. júlí 1893. Árið 1908 fluttist Vigfús til Vestmannaeyja með foreldrum sínum, Sigurði Vigfússyni og Ingibjörgu Björnsdóttur. Bjó hann í Pétursborg með fjölskyldu sinni. Hann kvæntist Jónu Guðríði Vilhjálmsdóttur.
![](/images/thumb/4/4b/Vigfus.jpg/250px-Vigfus.jpg)
Þau bjuggu að Bakkastíg 3 og áttu tvær dætur, Ástu og Láru. Húsið sem þau bjuggu í á Bakkastíg var kallað Fúsahús, eftir Vigfúsi.
Vigfús byrjaði ungur sjómennsku og árið 1920 hóf hann formennsku á Blíð. Eftir það er hann með Gústaf, Kap og fleiri báta fram yfir 1930. Eftir það hætti Vigfús formennsku og stundaði útgerð í nokkur ár.
![Vigfús á efri árum. Mynd tekin við Sundlaugina](/images/thumb/3/33/Sundlaugin006.jpg/200px-Sundlaugin006.jpg)
.
Áhöfn Vigfúsar á vélbátnum Gunnari Hámundarsyni var hætt komin þann 9. janúar 1926 nærri Stokkseyri, í atburði sem er kallaður Stokkseyrarveðrið 9. janúar 1926. Þar voru sextíu menn á tveimur bátum sem komust lífs af eftir miklar hrakningar. Vigfús lést 25 febrúar 1970.br>
Mynd til vinstri: Vigfús á efri árum við Sundlaugina.
Ljósm. Sigurgeir.
Heimildir
- Guðmundur Vigfússon. Stokkseyrarveðrið 9. janúar 1926. Sjómannadagsblaðið 1982. 31. árg.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.