„Sigurður Reimarsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
* Hér má lesa sögu um [[Brennukóngurinn Siggi Reim|brennukónginn Sigga Reim]]. | * Hér má lesa sögu um [[Brennukóngurinn Siggi Reim|brennukónginn Sigga Reim]]. | ||
[[Flokkur: | [[Flokkur:Verkamenn]] | ||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | [[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | ||
[[Flokkur:Íbúar við Skólaveg]] | [[Flokkur:Íbúar við Skólaveg]] |
Útgáfa síðunnar 29. júní 2007 kl. 14:06
Sigurður Reimarsson er fæddur í Vestmannaeyjum 2. júní 1928 og uppalinn þar. Móðir Sigurðar var úr Reykjavík og faðir hans, Reimar Hjartarson, úr Landeyjum en fjölskyldan bjó á Hásteinsvegi 34 og síðar í Heiðartúni sem Reimar byggði. Þar rak hann einnig rörsteypugerð. Sigurður bjó lengi í húsinu Stakagerði-Vestra, en það var rifið á tíunda áratugnum. Sigurður býr nú á Hraunbúðum.
Sigurður, eða Siggi Reim eins og Eyjamenn kalla hann, starfaði um hríð hjá Lifrarsamlaginu en lengst af starfaði hann hjá Vestmannaeyjabæ við sorphirðingu og síðar við hreinsun á götum bæjarins. Siggi Reim er hvers manns hugljúfi og spjallaði hann mikið við Eyjamenn á götunum á meðan hann hreinsaði þær. Nú fer hann í göngur og hefur ekkert látið af spjallinu.
Siggi Reim var brennukóngur á Þjóðhátíðinni í rúmlega hálfa öld.
- Hér má lesa sögu um brennukónginn Sigga Reim.