„1973 Allir í bátana/Frásagnir, greinar og viðtöl tengd Heimaeyjargosinu/Jón Freyr Jóhannsson Bankað á dyr“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Hér rifjar [[Jón Freyr Jóhannsson]] upp gosnóttina  
Hér rifjar [[Jón Freyr Jóhannsson]] upp gosnóttina  
[[Mynd:Jonfreyr.jpg|thumb|400 px|Jón Freyr Jóhannsson]]
[[Mynd:Jonfreyr.jpg|thumb|400 px|[[Jón Freyr Jóhannsson]]]]


[[Mynd:Jonfreyrnoregur.jpg|thumb|400 px|[[Jón Freyr Jóhannsson]]  fór eins og flest Eyjabörn á hans aldri til Noregs sumarið 1973.  
[[Mynd:Jonfreyrnoregur.jpg|thumb|400 px|[[Jón Freyr Jóhannsson]]  fór eins og flest Eyjabörn á hans aldri til Noregs sumarið 1973.  

Útgáfa síðunnar 18. september 2025 kl. 17:31

Hér rifjar Jón Freyr Jóhannsson upp gosnóttina

Jón Freyr Jóhannsson
Jón Freyr Jóhannsson fór eins og flest Eyjabörn á hans aldri til Noregs sumarið 1973. Hér er hann með Staff fjölskyldunni sem hann var hjá í Noregi. Þau bjuggu þau rétt fyrir utan Tromsö

Bankað á dyr

Ég eins og allir 1973 Vestmannaeyingar þá á ég mínar minningar frá 23. janúar 1973

Var nokkuð sæll með stærðfræði-miðsvetrarpróf og bjóst við góðum árangri í miðsvetrarprófum, sem byrjuðu mánudaginn 22. janúar.

Ég og Lárus Ársælsson höfðum, í vinfengi, barist um hæstu einkunn í stærðfræði og var svo enn þennan dag að ræða, sem aðra.

Nóttin var rofin af banki á útidyr, og eins og eðlilegt var, þá efuðumst foreldar mínir um að Síi „fyrir neðan“ væri ódrukkinn og að hann væri sá rétti að túlka að um eldgos væri að ræða þessa nóttina.

Hann bar fregnir um eldgos og var nokkuð ákveðinn um þá skoðun sína

Afi, Jón Sveinsson, á Nýlendu, hafði vaknað við kall úr megafón slökkviliðs bæjarins og komið á Hólagötuna til okkar.

Palli Helga á Hólagötu 16 var, eftirminninnlega að tala við einhvern fyrir sunnan í sinn síma (í langri snúru sem var ekki viðurkennd af Pósti og Síma) og sagði okkur hafa lengi vantað meira byggingarmöl fyrir bæinn og þetta væri því allt hið besta mál, og nóg af möl!!

Framhald sögu okkar Hólagötu og Nýlendubúa var síðan eins og margra, við stukkum um borð á næsta bát (örugglega flóknara en ég man) og vorum skráð og merkt, eins og Jesúforeldrum sjálfum, meðhöndluð eins og hælisleitendanum mögulega.

Allt er síðan í einhverri móðu. Allt gerðist undireins og samtímis, gos, sigling, rútuferð frá Þollák, skráning í Austurbæjarskóla (líklega eins og í Betlehem) og svo einhver ferð í Hafnarfjörðinn, til bróðurs pabba, Ragnars Björnssonar og Dúu hans konu.

Tveimur vikum seinna í Kópavoginn til Hildar og Magga í Hrauntunguna.

Af okkur er helst að segja að allt gekk okkur í hag, gott fólk sem sá um okkur.

Það sem ég vil þó helst minnast er að Ólöf Margrét Magnúsdóttir, okkar sá sig knúna til að láta okkur í 4 ÓM safnast saman og kynnast aftur á Kópavogsbrautinni, til að að gefa okkur tækifæri til að kynnast aftur við breyttar kringumstæður ​

Endalausir þakkir til, Ólafar Margrétar Magnúsdóttur, við gleymum þér aldrei

Kveðja, Jón Freyr Jóhannsson

Jón Freyr Jóhannsson Lektor við Háskólann í Bifröst

Foreldrar : Freyja Jónsdóttir og Jóhann Björnsson

p.s. Pínulítið Svekktur yfir þessu "Fífli" frá Grindavík" ( báturinn sem Jón Freyr, sigldi með hét Fífill)