„Hlíðarhús“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 7: Lína 7:
[[Gísli Stefánsson (kaupmaður)|Gísli Stefánsson]] í Hlíðarhúsi, Ólafssonar stúdents í Selkoti, byrjaði verslunarútsölu i Hlíðarhúsi, íbúðahúsi sínu, fyrir Þorlák Ó Johnson kaupmann í Reykjavik, en frá 1885 rak Gísli verslun sjálfur. Sigldi hann utan og keypti vörur. Með þessari verslunarstofnun, er að vísu var smáverslun, var athyglisvert spor stigið í viðreisnaráttina. Gísli hafði áður veitt kaupfélagsskapnum forstöðu. Eftir dauða Gísla Stefánssonar 1904 lagðist verslun hans alveg niður, er var svipuð og borgaraverslanir þær, er um þessar mundir risu upp víðar. Eigi sést að verslunarleyfisbréf eða borgarabréf hafi verið gefið út.

Í Hlíðarhúsi var síðan eftir 1904 tekið á móti erlendum sjúklingum um nokkur ár hjá frú [[Soffía Andersdóttir|Soffíu Andersdóttur]] konu Gísla Stefánssonar. En nú var komið hér sjúkrahús, Frakkneska  sjúkrahúsið, er þó eigi var tekið til almennrar notkunar fyrr en seinna.

Húsið '''Hlíðarhús''' var rifið 1978 og stóð við [[Miðstræti]] 5b. Fyrra nafn hússins var [[Jónshús]] síðar var húsið kallað [[Hóll]] en síðar reisti sr. Jes A. Gíslason hús undir því heiti við [[Miðstræti]].  
Húsið '''Hlíðarhús''' var rifið 1978 og stóð við [[Miðstræti]] 5b. Fyrra nafn hússins var [[Jónshús]] síðar var húsið kallað [[Hóll (Miðstræti)|Hóll]] en síðar reisti sr. Jes A. Gíslason hús undir því heiti við [[Miðstræti]].  

{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 19. júní 2007 kl. 09:14

Hlíðarhús
Hlíðarhús fremst, þá talið frá vinstri: Strönd Veggur Hruni, Bjarmi, Hóll, London og Þingvellir.

Um 1880 byrjuðu eyjamenn sjálfir að panta vörur erlendis frá og mynduðu með sér félagsskap. Mjög lítið varð samt úr framkvæmdum vegna mótspyrnu kaupmanna. Gísli Stefánsson í Hlíðarhúsi, Ólafssonar stúdents í Selkoti, byrjaði verslunarútsölu i Hlíðarhúsi, íbúðahúsi sínu, fyrir Þorlák Ó Johnson kaupmann í Reykjavik, en frá 1885 rak Gísli verslun sjálfur. Sigldi hann utan og keypti vörur. Með þessari verslunarstofnun, er að vísu var smáverslun, var athyglisvert spor stigið í viðreisnaráttina. Gísli hafði áður veitt kaupfélagsskapnum forstöðu. Eftir dauða Gísla Stefánssonar 1904 lagðist verslun hans alveg niður, er var svipuð og borgaraverslanir þær, er um þessar mundir risu upp víðar. Eigi sést að verslunarleyfisbréf eða borgarabréf hafi verið gefið út. Í Hlíðarhúsi var síðan eftir 1904 tekið á móti erlendum sjúklingum um nokkur ár hjá frú Soffíu Andersdóttur konu Gísla Stefánssonar. En nú var komið hér sjúkrahús, Frakkneska sjúkrahúsið, er þó eigi var tekið til almennrar notkunar fyrr en seinna. Húsið Hlíðarhús var rifið 1978 og stóð við Miðstræti 5b. Fyrra nafn hússins var Jónshús síðar var húsið kallað Hóll en síðar reisti sr. Jes A. Gíslason hús undir því heiti við Miðstræti.

Heimildir

  • Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja, I. og II. bindi. Reykjavík: Fjölsýn forlag, 1989.
  • Myndin er úr myndasafni Þóris Óskarssonar er frá um 1920.

Fjölskyldan í Hlíðarhúsum um 1895. Friðrik Gísli Gíslason tók myndina.
Skýring við fjölskyldumynd frá Hlíðarhúsum samkv. Þóri Óskarssyni, Kárasonar og Jes Einari Þorsteinssyni, Einarssonar.
Fremsta röð frá vinstri: Friðrik Gísli ljósmyndari, f. 1870, d. 1906, Gísli Stefánsson kaupmaður, húsbóndi, f. 1842, d. 1903, heldur á (líklega) Rebekku, sem dó 3-4 ára, Soffía Lísbet húsfreyja, f. 1847, d. 1936, heldur á Kristjáni sjómanni, f. 1891, d. 1948.
Miðröð frá vinstri: Anna Ásdís, síðar Johnsen, húsfreyja, f. 1878, d. 1945, Guðbjörg Jónína, síðar Petersen og síðast kona Sæmundar Jónssonar, húsfreyja, f. 1880, d. 1969, Jóhann sjómaður og verkamaður, f. 1883, d. 1944 og Lárus ljósmyndari, f. 1885, d. 1950.
Aftasta röð frá vinstri: Ágúst útvegsbóndi, f. 1874, d. 1922, Jes Anders á Hól, prestur, verzlunarstjóri, kennari, bókasafnsvörður, f. 1872, d. 1961 og Stefán útvegsbóndi og veitingamaður á Sigríðarstöðum, f. 1876, d. 1953.