„Helga Sigurgeirsdóttir“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 22: | Lína 22: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Húsfreyjur]] | ||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] |
Útgáfa síðunnar 21. júní 2007 kl. 11:27
Helga Sigurgeirsdóttir húsmóðir og sjúkrahússtarfsmaður fæddist 11. nóvember 1936 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurgeir trésmiður í Reykjavík, f. 9. ágúst 1906, d. 9. september 1985, Guðjóns bónda á Gneistastöðum í Hraungerðishreppi, d. 1908, og konu (1902) Guðjóns, Helgu húsfreyju, síðar (1910) vinnukonu á Skarði á Landi, f. 26. júní 1870, d. 12. apríl 1953, Jónsdóttur frá Hárlaugsstöðum í Holtum. Móðir Helgu Sigurgeirsdóttur og kona Guðjóns var Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. október 1907, d. 11. apríl 1998, Ólafs bónda í Akurey í Landeyjum, Ólafssonar.
Helga ólst upp í Reykjavík, flutti til Eyja við hjónaband þeirra Jóns Bergs 1959. Í Eyjum rak hún heimilið, en eftir flutning þeirra til Hafnarfjarðar starfaði hún einnig lengi á Jósefsspítala þar. Hún býr nú í Hafnarfirði.
Maki (1959): Jón Berg Halldórsson skipstjóri og verkstjóri.
Börn þeirra Jóns Bergs eru:
- Halldór Berg iðnrekandi, f. 5. febrúar 1959 í Eyjum.
- Sigurbjörg bókari, f. 1. marz 1961 í Eyjum.
- Ólafur Þór pípulagningameistari, f. 6. nóvember 1962 í Eyjum.
Fyrir hjónaband átti Helga barn með Meyvant Meyvantssyni. Það er
- Guðmundur Meyvantsson togarasjómaður í Hafnarfirði, f. 23. október 1955 í Reykjavík.
Heimildir:
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
- Helga Sigurgeirsdóttir.
- Landmannabók.
- Manntöl.