„Mylluhóll hjá Vilborgarstöðum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(setti flokk.)
Lína 11: Lína 11:
*[[Sigfús M. Johnsen]]. ''Saga Vestmannaeyja.'' Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.}}
*[[Sigfús M. Johnsen]]. ''Saga Vestmannaeyja.'' Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.}}
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur: Horfinn heimur]]

Útgáfa síðunnar 19. janúar 2007 kl. 21:07

Mylluhóll eða Vindkvarnarhóll var hóll norður af Vilpu og í landnorður frá Austari Vilborgarstöðum, (Austurbænum).
Þar var ein af þrem kornmyllum í Eyjum. Ein var fyrir ofan Hraun, önnur í túni Stakkagerðis. Um skeið var reyndar mylla á brauðgerðarhúsi Garðsverzlunar, reist af Jens Benediktssen kaupmanni.
Mylluna á Vilborgarstöðum áttu þau hjónin Árni Einarsson hreppstjóri og þingmaður um hríð og Guðfinna Jónsdóttir Austmann, sem bjuggu þar. Var þessi mylla mest notuð.
Talsverður umbúnaður fylgdi myllunni. Allmikill 6 álna staur var grafinn niður í hólinn. Um hann snerist myllan. Ásinn var nefndur „draugur“ eins og hverfihlið nefndust í Eyjum, en þau voru algeng austur á bæjum.
Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.
Eftir stóð lautin í hólnum fram að gosi.


Heimildir