„Ingibjörg Arngrímsdóttir (Kirkjubæ)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ingibjörg Arngrímsdóttir''' frá Kirkjubæ, húsfreyja á Berustöðum í Ásahreppi, Rang. fæddist 1702.<br> Foreldrar hennar voru Arngrímur Pétursson prestur, f. 1660, d. 1742, og fyrri kona hans Sgrún Ólafsdóttir frá Heylæk í Fljótshlíð, húsfreyja, f. 1672, d. 1707. Þau Teitur giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Keldum 1736-1740, á Sandhólaferju í Djúpárhreppi, Rang., á Berustö...) |
m (Verndaði „Ingibjörg Arngrímsdóttir (Kirkjubæ)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 20. apríl 2024 kl. 14:11
Ingibjörg Arngrímsdóttir frá Kirkjubæ, húsfreyja á Berustöðum í Ásahreppi, Rang. fæddist 1702.
Foreldrar hennar voru Arngrímur Pétursson prestur, f. 1660, d. 1742, og fyrri kona hans Sgrún Ólafsdóttir frá Heylæk í Fljótshlíð, húsfreyja, f. 1672, d. 1707.
Þau Teitur giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Keldum 1736-1740, á Sandhólaferju í Djúpárhreppi, Rang., á Berustöðum 1759 og 1762.
I. Maður Ingibjargar var Teitur Gottskálksson bóndi, f. 1701. Foreldrar hans voru Gottskálk Þórðarson prestur á Keldum á Rangárvöllum, f. 1666, d. 1736, og síðari kona hans Ástríður Pálsdóttir húsfreyja, f. 1657, d. 1722.
Börn þeirra:
1. Arngrímur Teitsson bóndi á Berustöðum, skírður 13. júlí 1738. Fyrri kona hans Margrét Tómasdóttir. Síðari kona hans var Ingibjörg Jónsdóttir.
2. Stúlka, f. 1742.
3. Ingveldur Teitsdóttir húsfreyja á Grjótá í Fljótshlíð, f. 1747, d. 22. október 1818. Maður hennar Halldór Oddsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
- Íslendingabók.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.