„Halldór Rósmundur Helgason“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 14: | Lína 14: | ||
Kona Halldórs Rósmundar var Sigríður Halldóra Loftsdóttir, f. 26. mars 1925, d. 16. maí 1993.
| Kona Halldórs Rósmundar var Sigríður Halldóra Loftsdóttir, f. 26. mars 1925, d. 16. maí 1993.

Börn þeirra:
| Börn þeirra:

1. [[Magnea Halldórsdóttir]] húsfreyja, starfsmaður í [[Hraunbúðir|Hraunbúðum. Hún er dóttir Sigríðar, kjördóttir Halldórs, | 1. [[Magnea Halldórsdóttir]] húsfreyja, starfsmaður í [[Hraunbúðir|Hraunbúðum]]. Hún er dóttir Sigríðar, kjördóttir Halldórs, er fædd 3. ágúst 1948.

2. Ragnar Helgi Halldórsson smiður, f. 1. ágúst 1951.
| 2. Ragnar Helgi Halldórsson smiður, f. 1. ágúst 1951.

3. Halldóra Halldórsdóttir húsfreyja, kjördóttir þeirra, f. 13. ágúst 1961. | 3. Halldóra Halldórsdóttir húsfreyja, kjördóttir þeirra, f. 13. ágúst 1961. |
Útgáfa síðunnar 11. nóvember 2023 kl. 16:43
Halldór Rósmundur Helgason bifreiðastjóri í Hafnarfirði, verkamaður í Njarðvík fæddist 1. júní 1926 í Reynisholti og lést 2. janúar 2011.
Foreldrar hans voru Helgi Kristinn Halldórsson sjómaður, f. 19. ágúst 1897, d. 27. janúar 1977, og kona hans Ragnhildur Magnúsdóttir húsfreyja, f. 19. febrúar 1900, d. 14. janúar 1939.
Halldór Rósmundur var með foreldrum sínum í æsku. Hann fluttist með þeim til Ólafsfjarðar 1929 og ólst þar upp. Þar eignuðust foreldrar hans tvö börn, en faðir hans hafði ættleitt Alexander, sem ólst þar upp.
Móðir hans lést 1939.
Faðir hans kvæntist Guðfinnu Jónsdóttur frá Ólafsfirði og eignaðist með henni þrjú börn.
Halldór Rósmundur fluttist í Hafnarfjörð. Hann kvæntist Sigríði Halldóru.
Þau áttu 3 börn.
Hann stundaði beitningu, útgerð og sjómennsku og var um árabil bifreiðastjóri hjá Esso í Hafnarfirði.
Þau fluttust í Njarðvíkur um 1990.
Sigríður lést 1993 og Halldór 2011.
Kona Halldórs Rósmundar var Sigríður Halldóra Loftsdóttir, f. 26. mars 1925, d. 16. maí 1993.
Börn þeirra:
1. Magnea Halldórsdóttir húsfreyja, starfsmaður í Hraunbúðum. Hún er dóttir Sigríðar, kjördóttir Halldórs, er fædd 3. ágúst 1948.
2. Ragnar Helgi Halldórsson smiður, f. 1. ágúst 1951.
3. Halldóra Halldórsdóttir húsfreyja, kjördóttir þeirra, f. 13. ágúst 1961.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 14. janúar 2011. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.