„Maren Guðjónsdóttir“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Maren Gudjonsdottir.jpg|thumb|200px|''Maren Guðjónsdóttir.]] | |||
'''Maren Anna Guðjónsdóttir''' húsfreyja fæddist 5. mars 1915 á Enni á Höfðaströnd í Skagafirði og lést 20. apríl 1998.<br> | '''Maren Anna Guðjónsdóttir''' húsfreyja fæddist 5. mars 1915 á Enni á Höfðaströnd í Skagafirði og lést 20. apríl 1998.<br> | ||
Foreldrar hennar voru Guðjón Jakob Þórarinsson frá Enni, búfræðingur og bóndi á Enni, síðar á Siglufirði, f. 31. janúar 1880, d. 13. febrúar 1966 á Siglufirði, og kona hans Jóna Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1881 á Miðhóli í Fellshreppi, d. 6. október 1926 á Siglufirði. | Foreldrar hennar voru Guðjón Jakob Þórarinsson frá Enni, búfræðingur og bóndi á Enni, síðar á Siglufirði, f. 31. janúar 1880, d. 13. febrúar 1966 á Siglufirði, og kona hans Jóna Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1881 á Miðhóli í Fellshreppi, d. 6. október 1926 á Siglufirði. |
Útgáfa síðunnar 13. nóvember 2022 kl. 19:25
Maren Anna Guðjónsdóttir húsfreyja fæddist 5. mars 1915 á Enni á Höfðaströnd í Skagafirði og lést 20. apríl 1998.
Foreldrar hennar voru Guðjón Jakob Þórarinsson frá Enni, búfræðingur og bóndi á Enni, síðar á Siglufirði, f. 31. janúar 1880, d. 13. febrúar 1966 á Siglufirði, og kona hans Jóna Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1881 á Miðhóli í Fellshreppi, d. 6. október 1926 á Siglufirði.
Maren var með foreldrum sínum í æsku, á Enni, og á Siglufirði frá 1925. Hún var þar til 1939, er hún flutti til Eyja með Páli.
Þau giftu sig 1941, eignuðust eitt kjörbarn. Þau bjuggu í fyrstu í Sætúni við Bakkastíg 10, þá á Helgafellsbraut 15, keyptu húsið við Ásaveg 23 1953 og bjuggu þar uns þau fluttu til Reykjavíkur 1968 og bjuggu í Hraunbæ 162 til ársins 1988, en þá lést Páll.
Maren flutti til sonar síns, fyrst að Stóru-Brekku í Fljótum, en síðan að Birkibergi 22 í Hafnarfirði.
Maren lést 1998.
I. Maður Marenar Önnu, (4. janúar 1941), var Páll Ingibergsson frá Hjálmholti, útgerðarmaður, skipstjóri, f. 6. maí 1913, d. 15. janúar 1988.
Barn þeirra (kjörbarn):
1. Gunnar Reynir Pálsson framkvæmdastjóri, f. 22. maí 1952. Kona hans Sigríður Björnsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 30. apríl 1998. Minning.
- Prestþjónustubækur.
- Skagfirskar æviskrár – Tímabilið 1890-1910. Margir höfundar. Ritstjóri: Eiríkur Kristinsson. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 1964-1972.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.