„Sighvatur Bjarnason (Ási)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Sighvatur Bjarnason í [[Ás]]i var fæddur á Stokkseyri 27 október 1903 og lést 15. nóvember 1975. Hann ólst upp á Stokkseyri en flutti til Vestmannaeyja árið 1925, þá rúmlega tvítugur. Sighvatur var kvæntur Guðmundu Torfadóttur frá Hnífsdal, eignuðust þau 8 börn.
'''Sighvatur Bjarnason''' í [[Ás]]i var fæddur á Stokkseyri 27 október 1903 og lést 15. nóvember 1975. Hann ólst upp á Stokkseyri en flutti til Vestmannaeyja árið 1925, þá rúmlega tvítugur. Sighvatur var kvæntur Guðmundu Torfadóttur frá Hnífsdal, eignuðust þau 8 börn.


Sighvatur varð fljótt einn af aflasælustu skipstjórum í Vestmannaeyjum. Hann varð einn af kunnustu síldarskipstjórum landsins og oftar en einu sinni [[Aflakóngar|aflakóngur]] á vetrarvertíð. Sighvatur varð fyrstur til að vinna aflakóngstitilinn, eftir að fjölskylda [[Hannes lóðs|Hannesar lóðs]] gaf skipið árið 1953, til áhafnarinnar á [[Erlingur III|Erlingi III]].
Sighvatur varð fljótt einn af aflasælustu skipstjórum í Vestmannaeyjum. Hann varð einn af kunnustu síldarskipstjórum landsins og oftar en einu sinni [[Aflakóngar|aflakóngur]] á vetrarvertíð. Sighvatur varð fyrstur til að vinna aflakóngstitilinn, eftir að fjölskylda [[Hannes lóðs|Hannesar lóðs]] gaf skipið árið 1953, til áhafnarinnar á [[Erlingur III|Erlingi III]].

Útgáfa síðunnar 1. ágúst 2006 kl. 15:37

Sighvatur Bjarnason í Ási var fæddur á Stokkseyri 27 október 1903 og lést 15. nóvember 1975. Hann ólst upp á Stokkseyri en flutti til Vestmannaeyja árið 1925, þá rúmlega tvítugur. Sighvatur var kvæntur Guðmundu Torfadóttur frá Hnífsdal, eignuðust þau 8 börn.

Sighvatur varð fljótt einn af aflasælustu skipstjórum í Vestmannaeyjum. Hann varð einn af kunnustu síldarskipstjórum landsins og oftar en einu sinni aflakóngur á vetrarvertíð. Sighvatur varð fyrstur til að vinna aflakóngstitilinn, eftir að fjölskylda Hannesar lóðs gaf skipið árið 1953, til áhafnarinnar á Erlingi III.

Sighvatur eignaðist sinn fyrsta bát árið 1926 og fylgdu fleiri á eftir. Sighvatur var gæfumaður í starfi og hlaut hina íslensku fálkaorðu fyrir björgun skips í sjávarháska. Sighvatur hætti til sjós 1959 og gerðist þá framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Sighvatur var framkvæmdastjóri þar í fjöldamörg ár, meðal annars gosárið 1973, en þá fluttist hann búferlum í verbúðir Vinnslustöðvarinnar og bjuggu hann og Guðmunda, kona hans, þar nær allt gostímabilið.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sighvat:

Erling stýrir ávallt klár
æst þó stormur blási,
þorsk- og síldar sjólinn knár
Sighvatur í Ási.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Sighvatur sízt er latur
sínum á barki fínum.
Sækinn í kvarnung krækir,
kunnur á leiðum unna.
Iðjar á Erling þriðja,
aflanum kann að stafla,
hríð þó að hress á víði
hramm sýni vélar-gammi.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Þórarinn Ingi Ólafsson. http://www.eyjar.is/ingiol/.