„Pétur Gissurarson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Pétur Gissurarson (skipstjóri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 36: Lína 36:
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Skipstjórar]]
[[Flokkur: Stýrimenn]]
[[Flokkur: Stýrimenn]]
[[Flokkur: Eftirlitsmenn]]
[[Flokkur: Eftirlitsmenn]]

Útgáfa síðunnar 14. mars 2022 kl. 17:21

Gissur Pétur Gissurarson skipstjóri fæddist 17. maí 1935 á Gjábakka við Bakkastíg.
Foreldrar hans voru Gissur Ó. Erlingsson löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi, fulltrúi, loftskeytamaður, stöðvarstjóri, umdæmisstjóri, þýðandi, f. 21. mars 1909 í Brúnavík, N.-Múl., d. 18. mars 2013 á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð í Reykjavík, og fyrri kona hans Mjallhvít Margrét Linnet frá Tindastóli, húsfreyja, f. 22. október 1911, d. 21. nóvember 1972.

Börn Mjallhvítar og Gissurar:
1. Jóhanna Unnur Gissurardóttir Erlingson húsfreyja, ljóðskáld, f. 16. janúar 1932 á Tindastóli, d. 29. mars 2020. Maður hennar Jón Sigurðsson.
2. Kristján Linnet Gissurarson símatæknimaður, tónlistarkennari, f. 1. febrúar 1933 á Grímsstöðum. Kona hans Bjarney Halldóra Bjarnadóttir.
3. Erlingur Þór Gissurarson véltæknifræðingur, f. 2. mars 1934 á Gjábakka, d. 4. nóvember 2009. Kona hans Erla Hilmarsdóttir.
4. Gissur Pétur Gissurarson skipstjóri, f. 17. maí 1935 á Gjábakka. Fyrrum kona hans Guðrún Mikaelsdóttir.
5. Kristín Gissurardóttir húsfreyja, f. 17. apríl 1938 í Björk. Maður hennar Páll Vilhjálmsson.
6. Jón Örn Gissurarson verkamaður, f. 29. september 1939 í Björk. Fyrrum konur hans Dís Guðbjörg Óskarsdóttir og Elísabet Árný Tyrfingsdóttir. Kona hans Brynhildur Guðmundsdóttir.
Börn Mjallhvítar og síðari manns hennar J. S. Brown frá Kansas City í Missouri í Bandaríkjunum.
7. Elisabeth Anna Brown, f. 17. febrúar 1949. Hún býr á Selfossi. Maður hennar Davíð Markússon.
8. Margrét Ragnheiður Björnsdóttir (hét áður Margrét Ragnheiður Brown), f. 17. febrúar 1949. Hún býr í Mosfellsbæ. Maður hennar Steingrímur Vigfússon.

Pétur var með foreldrum sínum í æsku, á Gjábakka við Bakkastíg og í Björk við Vestmannabraut 47, en þau skildu 1942, er hann var 7 ára.
Hann lauk prófi í fiskimannadeild Stýrimannaskólans í Reykjavík vorið 1962.
Pétur stundaði sjómennsku, var á bátum og togurum frá 1955, I. stýrimaður á Runólfi SH, skipstjóri á Bjarna Herjólfssyni ÁR, stýrimaður á Snorra Sturlusyni, stýrimaður á Helgu Guðmundsdóttur, sem síðar hét Látraröstin, á Sæfara frá Tálknafirði, skipstjóri á Konráði, stýrimaður á Víkingi frá Akranesi, I. stýrimaður á Krossvík AK, stýrimaður um skeið á togaranum Ver við landhelgisgæslu í þorskastríðinu 1976, skipstjóri á Framtíðinni frá Keflavík í hálft ár, í kolmunnaleit fyrir Hafrannsóknastofnun.
Pétur var eftirlitsmaður með fiskverkun hjá fyrirtækjum í Nova Scotia í Kanada 1980-1985.
Þau Guðrún giftu sig, eignuðust þrjú börn og Pétur gekk Mikael barni Guðrúnar í föðurstað. Þau skildu.

I. Kona Péturs, skildu, er Guðrún Mikaelsdóttir frá Patreksfirðir, húsfreyja, f. 13. ágúst 1944. Foreldrar hennar voru Mikael Þorsteinsson frá Litlu-Hlíð á Barðaströnd, olíuflutningabifreiðastjóri, f. 4. júlí 1919, d. 29. apríl 1997, og kona hans Sigríður Jóna Sabína Sigurðardóttir frá Kirkjubóli í Selárdal í Arnarfirði, húsfreyja, f. 5. desember 1913, d. 29. apríl 1999.
Börn þeirra:
1. Mikael Þorsteinsson starfsmaður við fiskeldi, vinnuvélastjóri, f. 16. apríl 1964. Barnsmóðior hans Margrét Rósa Garðarsdóttir.
2. Stefán Pétursson stýrimaður, sjúkraflutningamaður, f. 23. janúar 1967. Kona hans Dröfn Jónsdóttir.
3. Birkir Pétursson vélstjóri, rútubifreiðastjóri, f. 22. febrúar 1968. Kona hans Adeline, filippínskrar ættar.
4. Steinunn Kristín Pétursdóttir skrifstofustjóri, f. 28. desember 1973. Maður hennar Haraldur E. Sigurðsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið.
  • Pétur.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.