„Ingibjörg Jónsdóttir (Kirkjudal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|100px|''Ingibjörg Jónsdóttir. '''Ingibjörg Jónsdóttir''' frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja fæddis...)
 
m (Verndaði „Ingibjörg Jónsdóttir (Kirkjudal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 27. nóvember 2021 kl. 14:10

Ingibjörg Jónsdóttir.

Ingibjörg Jónsdóttir frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, húsfreyja fæddist þar 17. mars 1909 og lést 23. janúar 2001 á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Foreldrar hennar voru Jón Guðmundsson bóndi, f. 17. maí 1872 á Langekru á Rangárvöllum, d. 15. apríl 1940 og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 15. október 1876 á Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd, Gull., d. 11. maí 1962.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Kort giftu sig í Eyjum 1934, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Kirkjudal við Skólaveg 45.
Þau fluttu að Torfastöðum, tóku þar við búi og bjuggu þar til 1962, fluttu þá til Reykjavíkur.
Kort lést 1964.
Ingibjörg vann hjá Reykjavíkurborg.
Hún bjó við Flókagötu, lést 2001.

I. Maður Ingibjargar, (28. júní 1934), var Kort Eyvindsson frá Seljalandi u. V.-Eyjafjöllum, verkamaður, f. 1. desember 1901, d. 21. ágúst 1964.
Börn þeirra:
1. Jóna Guðrún Kortsdóttir, f. 28. febrúar 1934 í Kirkjudal, d. 11. nóvember 2021. Maður hennar Guðmundur Anton Guðmundsson.
2. Jón Sigurbergur Kortsson, f. 30. apríl 1939. Fyrrum kona hans Selma Egilsdóttir.
3. Eygló Kortsdóttir, f. 29. maí 1940. Fyrrum maður hennar Loftur Gunnar Steinbergsson.
Fóstursonur Ingibjargar og Korts var
4. Gunnar Ingi Birgisson verkfræðingur, alþingismaður, bæjarstjóri, f. 30. september 1947, d. 14. júní 2021. Kona hans Vigdís Karlsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók
  • Morgunblaðið 3. febrúar 2001. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.