„Jóhann Guðmundsson (Brekku)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jóhann Guðmundsson''' frá Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, vinnumaður, sjómaður fæddist 13. ágúst 1886 og lést 26. nóvember 1918.<br> Foreldrar hans voru Guðmundur Magn...) |
m (Verndaði „Jóhann Guðmundsson (Brekku)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 15. nóvember 2019 kl. 13:45
Jóhann Guðmundsson frá Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, vinnumaður, sjómaður fæddist 13. ágúst 1886 og lést 26. nóvember 1918.
Foreldrar hans voru Guðmundur Magnússon bóndi, f. 28. febrúar 1845 á Skíðbakka í A-Landeyjum, d. 10. apríl 1898, og sambýliskona hans Guðríður Jónsdóttir frá Berjanesi í V-Landeyjum, húsfreyja, f. 19. maí 1848, d. 8. febrúar 1894.
Tvíburasystir Jóhanns var
1. Sigríður Guðmundsdóttir, síðar húsfreyja í Hamragörðum u. V-Eyjafjöllum.
Jóhann var með foreldrum sínum 1890, var hjú á Bergþórshvoli 1901, kom þaðan til Eyja 1903. Hann var vinnumaður á Bergi 1909, sjómaður á vélbát á Brekku 1910, leigjandi þar 1912, leigjandi í Túni 1915 og þar var hann lausamaður við andlát 1918. Hann var ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.