„Jón Jónsson (Brautarholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 3: | Lína 3: | ||
---- | ---- | ||
Jón Jónsson í Brautarholti fæddist 15. júlí 1869 í Norðurbænum á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]] | Jón Jónsson í Brautarholti fæddist 15. júlí 1869 í Norðurbænum á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]] og lést 4. september 1964. Jón fluttist með foreldrum sínum að [[Dalir|Dölum]] árið 1880. | ||
Foreldrar hans voru hjónin [[Jón Jónsson (hreppstjóri)|Jón Jónsson]] hreppsjóri í Dölum og kona hans Jóhanna Gunnsteinsdóttir. Eina systur átti hann, Dómhildi, en hún flutti ung til Ameríku. | Foreldrar hans voru hjónin [[Jón Jónsson (hreppstjóri)|Jón Jónsson]] hreppsjóri í Dölum og kona hans Jóhanna Gunnsteinsdóttir. Eina systur átti hann, Dómhildi, en hún flutti ung til Ameríku. | ||
Lína 15: | Lína 15: | ||
Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í [[Álsey]]. Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef. | Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í [[Álsey]]. Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef. | ||
Jón lést | Jón lést árið 1964, 93 ára að aldri. | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Fólk]] |
Útgáfa síðunnar 4. september 2006 kl. 13:52
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Jónsson“
Jón Jónsson í Brautarholti fæddist 15. júlí 1869 í Norðurbænum á Vilborgarstöðum og lést 4. september 1964. Jón fluttist með foreldrum sínum að Dölum árið 1880. Foreldrar hans voru hjónin Jón Jónsson hreppsjóri í Dölum og kona hans Jóhanna Gunnsteinsdóttir. Eina systur átti hann, Dómhildi, en hún flutti ung til Ameríku.
Eiginkona Jóns var Guðríður Bjarnadóttir í Svaðkoti, f. 1875. Þau eignuðust 5 börn, Bjarna f. 1896, dó ungur, Jónu Jóhönnu, f. 1899, dó í Canada , Bjarneyju Ragnheiði f. 1905 í Canada, Jónu Jóhönnu f. 1907, d. 2005 og Ólaf Gunnstein f. 1911, d. 1984.
Jón og Guðríður hófu búskap í Svaðkoti hjá móður Guðríðar, en byggðu síðan nýtt Svaðkot á svipuðum stað og Suðurgarður stendur núna. Þetta var lítið einlyft hús.
Jón og Guðríður fluttu til Kanada um aldamótin og bjuggu í Selkirk. Þau fluttu aftur heim árið 1907 og byggðu Brautarholt við Landagötu 3b árið 1908.
Jón stundaði sjómennsku, þar af 13 ár á Gideon, gerði út báta, vann við byggingu Fiskimjölsverksmiðjunnar og vann þar síðan til ársins 1933, en gerðist þá ráðsmaður á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja í fjölda ára. Jón var heiðursfélagi í Bjargveiðifélagi Álseyinga. Hann hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Álsey. Veiðistaður einn í eynni er nefndur eftir honum, heitir hann Jónsnef.
Jón lést árið 1964, 93 ára að aldri.