„Hávarður Ásbjörnsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: 250px|thumb|''Hávarður Ásbjörnsson. '''Hávarður Ásbjörnsson''' frá Sólheimatungu við Brekastíg 14, bifreiðastjór...)
 
m (Verndaði „Hávarður Ásbjörnsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 3. október 2019 kl. 16:04

Hávarður Ásbjörnsson.

Hávarður Ásbjörnsson frá Sólheimatungu við Brekastíg 14, bifreiðastjóri, stýrimaður fæddist 2. febrúar 1934 í Bergholti og lést 12. febrúar 1962.
Foreldrar hans voru Ásbjörn Þórðarson skipstjóri, netamaður, f. 14. desember 1899 á Sléttabóli á Brunasandi, V-Skaft., d. 10. nóvember 1974 í Reykjavík og kona hans Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir frá Stokkseyri, húsfreyja, f. 20. október 1907, d. 10. júlí 1991.

Börn Jóhönnu og Ásbjörns:
1. Ester Ásbjörnsdóttir, f. 14. júní 1930. Hún var rannsóknamaður í Kópavogi. Maður hennar: Tómas Sigurðsson bifreiðastjóri.
2. Svala Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. júní 1931, síðast í Reykjavík, d. 18. nóvember 2012. Fyrri maður hennar var Ólafur Friðbjörnsson Hólm kennari í Reykjavík. Þau skildu. Síðari maður Svölu var Bragi Pétursson.
3. Hávarður Ásbjörnsson stýrimaður, vélstjóri, f. 2. febrúar 1934, d. 12. febrúar 1962. Kona hans var Edda Einars Andrésdóttir.

Hávarður var með foreldrum sínum í æsku, í Bergholti og Sólheimatungu.
Hann nam vélstjórn og síðar lauk hann fiskimannaprófi hinu minna til skipstjórnar.
Hávarður var lengi bifreiðastjóri, en varð sjómaður og stýrimaður á Hildingi VE 3, er hann lést í veiðiferð 1962.
Þau Edda giftu sig 1957, eignuðust eitt barn. Edda lést 1999.

I. Kona Hávarðs, (21. apríl 1957), var Edda Einars Andrésdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1935 í Reykjavík, d. 6. desember 1999 á Vífilsstöðum.
Barn þeirra:
1. Hjalti Hávarðsson, f. 10. janúar 1957 á Rauðafelli. Kona hans var Sigríður Garðarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.