„Gyða Magnúsdóttir (hjúkrunarfræðingur)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Gyða Margrét Magnúsdóttir. '''Gyða Margrét Magnúsdóttir''' hjúkrunarfræðingur fæddist 5. nóvember 1942 á Stór...) |
m (Verndaði „Gyða Magnúsdóttir (hjúkrunarfræðingur)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 17. júlí 2019 kl. 13:41
Gyða Margrét Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur fæddist 5. nóvember 1942 á Stóra-Gjábakka, Bakkastíg 8.
Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson kennari, skólastjóri, f. 6. ágúst 1916 í Bolungarvík, d. 6. júní 2012 í Reykjavík, og kona hans Jónína Sigrún Jónsdóttir húsfreyja, kennari, f. 12. febrúar 1918 á Snældubeinsstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði og lést 14. maí 2013 í Reykjavík.
Börn Sigrúnar og Magnúsar:
1. Gyða Margrét Magnúsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 5. nóvember 1942 á Stóra-Gjábakka.
2. Jón Magnússon lögfæðingur, hæstaréttarlögmaður, fyrrverandi alþingismaður, f. 23. mars 1946 á Akranesi.
Gyða var með foreldrum sínum í æsku.
Hún lauk landsprófi í Gagnfæðaskólanum við Vonarstræti 1958 og hjúkrunarnámi í Hjúkrunarskóla Íslands í mars 1965, stundaði framhaldsnám í skurðstofuhjúkrun við Landspítalann 1. nóvember 1966 – 30. maí 1967 og 1. apríl 1968 - 1. september 1968, lauk námi í kennslu- og uppeldisfræði fyrir hjúkrunarfræðinga við Kennaraháskóla Íslands 1979, BSc. í hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands 1994.
Gyða var hjúkrunarfræðingur við Sjúkrahúsið á Akranesi 1. apríl 1965 til 1. október 1965, við handlæknisdeild Landspítalans 15. október 1965 til 9. apríl 1966, Danderyds sjukhus í Danderyd í Svíþjóð gjörgæsludeild 14. apríl 1966 til 1. september 1966.
Hún var hjúkrunarfræðingur á Landakoti september 1969
- febrúar 1970, stundakennarei við Þroskaþjálfaskóla Íslands september 1980-maí 1982, kennari við Sjúkraliðaskóla Íslands janúar 1981 - ágúst 1984, hjúkrunarfræðingur á skurðdeild Borgarspítalans september 1984 - september 1988, í Blóðbankanum 1988 til starfsloka.
Þau Ársæll giftu sig 1966, eignuðust þrjú börn, búa í Reykjavík.
I. Maður Gyðu Margrétar, (5. nóvember 1966), er Ársæll Jónsson lyflæknir, öldrunarlæknir, f. 14. nóvember 1939. Foreldrar hans voru Jón Steingrímsson stýrimaður og skipstjóri í Reykjavík og víðar, lengst af hjá sænsku skipafélagi, síðar í Keflavík, f. 27. júlí 1914, d. 29. janúar 2004, og kona hans Þórgunnur Ársælsdóttir húsfreyja, ritari í Reykjavík, f. 2. júlí 1915, d. 6. janúar 1972.
Börn þeirra:
1. Þórgunnur Ársælsdóttir læknir, f. 16. júlí 1967 í Reykjavík. Maður hennar er Ragnar Jónsson bæklunarlæknir, f. 14. október 1952.
2. Magnús Ársælsson, f. 1. maí 1970.
3. Árni Ársælsson, f. 3. ágúst 1975.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
- Íslendingabók.is.
- Læknar á Íslandi. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga 2000.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.