„Samgöngur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:


== Skipaferðir 1940-1942 ==
== Skipaferðir 1940-1942 ==
Árið 1940 tóku [[Sigurjón Ingvarsson]] og [[Jón Í. Sigurðsson]] vélbát á leigu sem hafði það að markmiði að fara á milli Stokkseyrar og Vestmannaeyja. Sá bátur het [[Skíðblaðnir]]. Hann voru þeir með fyrsta sumarið, síðan [[Hersteinn|Herstein]] og loks Gísla Johnsen sem þeir félagar keyptu árið 1943. Sá bátur var rúmlega 32 lestir. Í bátinn voru settar upp 44 kojur og auk farþega voru fluttar vörur eftir því sem plássið leyfði. Síðasta ár Gísla Johnsen var árið 1956. Alls flutti hann 23 þúsund farþega í 730 ferðum.  Eftir að Gísli Johnsen hætti þótti mönnum nauðsynlegt að fá bát til Þorlákshafnarferða. [[Einar Sv. Jóhannesson]] keypti þá bátinn [[Vonarstjarna|Vonarstjörnu]] og hélt hann uppi sjóflutningum til Eyja sex daga vikunnar í þrjú ár en hann hætti árið 1958.
Árið 1940 tóku [[Sigurjón Ingvarsson]] og [[Jón Í. Sigurðsson]] vélbát á leigu sem hafði það að markmiði að fara á milli Stokkseyrar og Vestmannaeyja. Sá bátur het [[Skíðblaðnir]]. Hann voru þeir með fyrsta sumarið, síðan [[Hersteinn|Herstein]] og loks Gísla Johnsen sem þeir félagar keyptu árið 1943. Sá bátur var rúmlega 32 lestir. Í bátinn voru settar upp 44 kojur og auk farþega voru fluttar vörur eftir því sem plássið leyfði. Síðasta ár Gísla Johnsen var árið 1956. Alls flutti hann 23 þúsund farþega í 730 ferðum.  Eftir að Gísli Johnsen hætti þótti mönnum nauðsynlegt að fá bát til Þorlákshafnarferða. [[Einar Sv. Jóhannesson]] keypti þá bátinn [[Vonarstjarna|Vonarstjörnu]] og hélt hann uppi sjóflutningum til Eyja sex daga vikunnar í þrjú ár en hann hætti árið 1958. Töldu menn almennt að Einar og félagar höfðu staðið sig mjög vel, meðal annars vegna hættulegra vetrarveðra.





Útgáfa síðunnar 22. júní 2006 kl. 08:39

Samgöngur á sjó til 1940

Styðsta leiðin á milli lands og Eyja er upp á svonefndan Tanga austast í Austur-Landeyjum, nálægt bænum Bakka. Sú leið var aðalleiðin þegar flytja þurfti fólk á milli lands og Eyja fram á 20. öldina. Þá var farið á stórum áraskipum þessa 11 kílómetra sem á milli eru. Ef að Eyjamenn þurftu að ferðast til Reykjavíkur og skipsferð var ekki í nánd, var farið með þá upp í Landeyjar þar sem þeir fengu hesta sem þeir áttu að ríða á til Reykjavíkur.

Árið 1776 hófust reglulegar skipaferðir til Íslands, lengi vel ein ferð á ári. Árið 1858 komu gufuskipaferðir til sögunnar en þó svo að skipin hefði komið við í Vestmannaeyjum voru ferðirnar svo fáar að þörfin var ennþá mjög mikil. Strandferðir hófust árið 1876 og var siglt til sjö hafna utan Reykjavíkur. Skipstjórarnir, sem voru danskir, voru erfiðir viðureignar og á Alþingi árið 1877 kvartaði þingmaður Vestmannaeyja, Þorsteinn Jónsson yfir því að þrátt fyrir blíðuveður kæmu gufuskipin oft ekki við í Eyjum. Skipstjórarnir töldu víst að Eyjarnar væru grónar við Rangárvallasýslu. Einnig þótti fargjaldið hátt, en það kostaði 16 krónur að fara á milli Reykjavíkur og Eyja en ekki nema 6 krónur á milli Reykjavíkur og Stykkishólms. Samgöngur voru enn ekki nægilega góðar og í Ísafold 1897 er bréf úr Eyjum, skrifað 25 janúar þar sem segir að engar samgöngur hafi verið við meginlandið síðan í október.

Rit-og talsímafélag Vestmannaeyja

Þann 18. maí 1911 var stofnað Rit- og talsímafélag Vestmannaeyja. Síminn er vissilega ekki samgöngutæki en hann var gríðarlega mikið öryggi í sambandi við samgöngur í þá daga. Félagið lét leggja sæsíma til Eyja úr Landeyjasandi. Símstöðin var í Boston, litlu húsi á Krossgötum sem rifið var árið 1964.

Skaftfellingur

Árið 1917 var stofnað hlutafélagið Skaftfellingur sem lét smíða 63 lesta skip það sama ár. Skipið átti að halda uppi ferðum á milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja og þaðan austur til Öræfa. Skaftfellingur var að til ársins 1942. Ekki var um að ræða farþegaskip en ferðum fjölgaði vissulega og það var það sem Eyjamenn vildu.

Skipaferðir 1940-1942

Árið 1940 tóku Sigurjón Ingvarsson og Jón Í. Sigurðsson vélbát á leigu sem hafði það að markmiði að fara á milli Stokkseyrar og Vestmannaeyja. Sá bátur het Skíðblaðnir. Hann voru þeir með fyrsta sumarið, síðan Herstein og loks Gísla Johnsen sem þeir félagar keyptu árið 1943. Sá bátur var rúmlega 32 lestir. Í bátinn voru settar upp 44 kojur og auk farþega voru fluttar vörur eftir því sem plássið leyfði. Síðasta ár Gísla Johnsen var árið 1956. Alls flutti hann 23 þúsund farþega í 730 ferðum. Eftir að Gísli Johnsen hætti þótti mönnum nauðsynlegt að fá bát til Þorlákshafnarferða. Einar Sv. Jóhannesson keypti þá bátinn Vonarstjörnu og hélt hann uppi sjóflutningum til Eyja sex daga vikunnar í þrjú ár en hann hætti árið 1958. Töldu menn almennt að Einar og félagar höfðu staðið sig mjög vel, meðal annars vegna hættulegra vetrarveðra.



Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.