„Guðbjörg Jónsdóttir (Grímsstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: 250px|thumb|''Þorsteinn Jónsson og Guðbjög Jónsdóttir. '''Guðbjörg Jónsdóttir''' á [[Grímsstaðir|Grímsstöðu...)
 
m (Verndaði „Guðbjörg Jónsdóttir (Grímsstöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. janúar 2017 kl. 21:53

Þorsteinn Jónsson og Guðbjög Jónsdóttir.

Guðbjörg Jónsdóttir á Grímsstöðum, húsfreyja fæddist 2. júlí 1863 á Nesi í Aðaldal og lést 17. október 1947.
Foreldrar hennar voru Jón Bjarnason bóndi á Einarsstöðum í Kræklingahlíð, f. 20. júlí 1837, d. 9. september 1921, og kona hans Soffía Magnúsdóttir húsfreyja, f. 21. júlí 1842, d. 31. mars 1895.

Guðbjörg var vinnukona á Reyðarvatni á Rangárvöllum 1880.
Þau Þorsteinn giftu sig 1894, bjuggu í Vallarhjáleigu í Hvolhreppi til 1899, voru þá eitt ár á Stokkseyri, en síðan í vinnumennsku í Rangárþingi, bjuggu í Selshjáleigu 1910-1913, í Voðmúlstaða-Suðurhjáleigu (Bólstað) 1913-1923.
Þau fluttust til Eyja 1923, bjuggu fyrst í Nikhól, en síðan á Grímsstöðum.
Guðbjörg lést 1947 og Þorsteinn 1954.

Maður Guðbjargar, (6. nóvember 1894), var Þorsteinn Jónsson bóndi, síðar verkamaður í Eyjum, f. 2. október 1872 í Berjanesi í V-Landeyjum, d. 5. nóvember 1954.
Börn þeirra voru:
1. Þorsteinn Þorsteinsson útgerðarmaður, verkamaður í Lambhaga, f. 16. júní 1893, d. 14. september 1937.
2. Soffía Kristín Þorsteinsdóttir húsfreyja í Odda, f. 31. júlí 1895, d. 21. maí 1978.
3. Guðjón Þorsteinsson útgerðarmaður, verkamaður, f. 20. ágúst 1896, d. 20. júní 1935.
4. Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja í Lambhaga, f. 14. ágúst 1899, d. 4. september 1982.
5. Haraldur Þorsteinsson verkamaður á Grímsstöðum, f. 5. janúar 1902, d. 11. desember 1974.
6. Gissur Þorsteinsson kaupmaður, sölumaður, bóndi, f. 8. apríl 1903, d. 26. febrúar 1975.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.