„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1987/Breytingar á flotanum“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''Breytingar á flotanum'''

'''Breytingar á flotanum'''Úrelding

[[Mynd:Kristbjörg VE 70 SDBL. 1987.jpg|miðja|thumb|Kristbjörg VE 70]]
'''[[Hilmir Högnason]]:'''

'''[[Hilmir Högnason]]:'''

'''Suðaustan 12'''

'''Suðaustan 12'''

Útgáfa síðunnar 18. febrúar 2019 kl. 13:34

Breytingar á flotanum

Úrelding

Kristbjörg VE 70

Hilmir Högnason:
Suðaustan 12
Bölvaður pokinn burtu fokinn
beint á grannans grind.
Sorptunnulokin löngu rokin
langt í veður og vind.

Hilmir Högnason:
Veðurtepptir í Suðurey og sjódregnir
Það brimar við steðjann og svarrar hátt
og sveinarnir ungu stynja,
því Þjóðhátíð mun byrja brátt
og ballið um Dalinn dynja.
Þeir sitja hér fastir í Suðurey
og sárt er nú saknað af hverri mey.
,,Nú er það svart", segir Óli Týr
svo svartara gerist varla.
Leitt er að enda svo ævintýr úteyja lundakarla.
Leggjumst því bræður á „Bænabring"
og biðjum nú Skerprest um landnyrðing.

Morguninn eftir var mannað skip
með marga og vaska drengi
og peyjarnir settu upp sólskinssvip,
er sést hafði ekki lengi.
Dregið í sjó var það drengjaval,
djarfasti kappinn Valur í Dal.

Í trillunni tóku þeir hrollinn út
með tilbúnu heimabruggi,
og sungu við raust eftir hvern einn stút,
söng undir ölduruggi.
Á bryggjunni hlæjandi fljóðin fríð,
fögnuðu þeim inn'i á Þjóðhátíð.