„Þórunn Markúsdóttir (Sandprýði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þórunn Markúsdóttir''' í Sandprýði, húsfreyja fæddist 23. september 1892 í Hamragörðum u. V-Eyjafjöllum og lést 1. júní 1921 í Sandprýði.<br> Foreldrar henna...)
 
m (Verndaði „Þórunn Markúsdóttir (Sandprýði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 15. mars 2016 kl. 21:43

Þórunn Markúsdóttir í Sandprýði, húsfreyja fæddist 23. september 1892 í Hamragörðum u. V-Eyjafjöllum og lést 1. júní 1921 í Sandprýði.
Foreldrar hennar voru Markús Þórðarson bóndi í Hamragörðum og síðar á Lágafelli í A-Landeyjum, f. 25. júlí 1860 í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, d. 31. október 1898 á Lágafelli, og kona hans Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, síðar í Fagradal, f. 10. júlí 1851 í Dalseli u. V-Eyjafjöllum, d. 15. júní 1936 í Eyjum.

Faðir Þórunnar lést, er hún vr tæpra 6 ára. Móðir hennar fluttist með hana til Eyja 1900, en hún var send í fóstur að Seljalandsseli u. Eyjafjöllum og var þar 1901, ,,lifir á styrk frá móður sinni‘‘. Hún fór frá Seljalandsseli 1902 að Hlíðarendakoti í Fljótshlíð og var þar hjú 1910.
Þórunn fluttist til Eyja 1914, var vinnukona í Fagradal í lok ársins, var hjá móður sinni þar 1915-1917, vinnukona í Sandprýði 1918, kona Jóns Gíslasonar þar 1919.
Hún ól Markús þar 1920 og Þórarin Gísla 1921, en lést skyndilega 2 vikum síðar.

Maður Þórunnar, (7. júní 1919), var Jón Gíslason, síðar á Ármótum (Ármóti), f. 4. janúar 1888, d. 20. febrúar 1970.
Börn þeirra voru:
1. Markús Jónsson útgerðarmaður, skipstjóri, starfsmaður Olíuverslunar Íslands, síðast í Reykjavík, f. 3. apríl 1920, d. 27. apríl 1998.
2. Þórarinn Gísli Jónsson skrifstofumaður, síðast í Hafnarfirði, f. 18. maí 1921, d. 24. apríl 1987.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]