„Ólafur Ólafsson (Landlyst)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ólafur Ólafsson''' vinnumaður, sjómaður fæddist 26. mars 1875 í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð og lést 5. febrúar 1947.<br> Foreldrar hans voru Ólafur Jasonarson vinn...) |
m (Verndaði „Ólafur Ólafsson (Landlyst)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 27. nóvember 2015 kl. 16:28
Ólafur Ólafsson vinnumaður, sjómaður fæddist 26. mars 1875 í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð og lést 5. febrúar 1947.
Foreldrar hans voru Ólafur Jasonarson vinnumaður í Nikulásarhúsum, f. 4. nóvember 1853 í Neðra-Seli í Landsveit, og Helga Jónsdóttir vinnukona, f. 1849.
Ólafur var 5 ára tökudrengur í Nikulásarhússhjáleigu í Fljótshlíð 1880, var léttadrengur í Fljótsdal þar 1890.
Hann var kvæntur sjómaður og hjú í Landlyst 1901 og þar var einnig Arndís kona hans.
Þau Arndís bjuggu í Dalbæ við fæðingu Aðalbjargar 1902, í Hvammi við fæðingu Guðbjargar Karlottu 1904.
Þau fluttust til til Kanada 1905 með dætur sínar, bjuggu í Manitoba, Selkirk og Winnipeg, síðast í Seattle í Bandaríkjunum.
Kona Ólafs var Arndís Jónsdóttir vinnukona, f. 30. maí 1876, d. 12. október 1969.
Börn þeirra hér:
1. Aðalbjörg Ólafsdóttir, Mrs Verner Vestanhafs, f. 25. ágúst 1902 í Dalbæ.
2. Guðbjörg Karlotta Ólafsdóttir, Mrs Vopnfjörð Vestanhafs, f. 19. ágúst 1904 í Hvammi, d. 27. desember 1976.
3. Andrés Ólafsson, f. 1911, d. 1911.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.