„Kristján Jónsson (Dölum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Kristján Jónsson (Dölum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 4: | Lína 4: | ||
Kristján var með foreldrum sínum í Bólstað til 1904, en fluttist þá með þeim að Dölum.
| Kristján var með foreldrum sínum í Bólstað til 1904, en fluttist þá með þeim að Dölum.

Hann lærði skósmíðar og vann við þá iðn, en starfaði einnig sem sjómaður.
| Hann lærði skósmíðar og vann við þá iðn, en starfaði einnig sem sjómaður.

Þau | Þau Guðný bjuggu í [[Garðsauki|Garðsauka]] við [[Vestmannabraut]] 27 1912-1917, síðar á [[Minni-Núpur|Minni-Núpi]] við [[Brekastígur|Brekastíg 4]].

Kristján tók út af [[Sigríður VE-240|Sigríði VE-240]] fyrir innan Eyjar 1922.
| Kristján tók út af [[Sigríður VE-240|Sigríði VE-240]] fyrir innan Eyjar 1922.

Útgáfa síðunnar 9. mars 2016 kl. 17:29
Kristján Jónsson skósmiður, sjómaður frá Dölum fæddist 12. apríl 1888 á Bólstað í Mýrdal og drukknaði 21. mars 1922.
Foreldrar hans voru Jón Gunnsteinsson bóndi, útvegsmaður og söðlasmiður í Dölum, f. 10. desember 1844, d. 19. júlí 1924, og síðari kona hans Þorgerður Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 4. júní 1855 að Ketilsstöðum Mýrdal, d. 2. mars 1939.
Kristján var með foreldrum sínum í Bólstað til 1904, en fluttist þá með þeim að Dölum.
Hann lærði skósmíðar og vann við þá iðn, en starfaði einnig sem sjómaður.
Þau Guðný bjuggu í Garðsauka við Vestmannabraut 27 1912-1917, síðar á Minni-Núpi við Brekastíg 4.
Kristján tók út af Sigríði VE-240 fyrir innan Eyjar 1922.
Kona Kristjáns, (1. desember 1912), var Guðný Guðmundsdóttir húsfreyju, f. 29. mars 1890, d. 25. desember 1985. Kristján var fyrri maður hennar. Síðari maður hennar var Helgi Guðmundsson.
Börn þeirra voru:
1. Guðmundur Kristjánsson, f. 11. maí 1914 í Garðsauka, d. 5. júní 2003.
2. Elín Kristjánsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. ágúst 1915 í Garðsauka, d. 15. desember 1984.
3. Þorgerður Þórdís Kristjánsdóttir, f. 26. febrúar 1920 á Minni-Núpi, d. 2. mars 1990.
4. Guðlaug Alda Kristjánsdóttir kaupkona í Reykjavík, f. 21. september 1921 á Minni-Núpi, d. 2. desember 2012.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.