„Þorleifur Guðjónsson (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 11: | Lína 11: | ||
Þorleifur var tvíkvæntur.
| Þorleifur var tvíkvæntur.

I. Fyrri kona hans, (1952, skildu), var [[Erika | I. Fyrri kona hans, (23. nóvember 1952, skildu), var [[Erika Minna Maria Lemke]] húsfreyja, f. 22. mars 1912.

Barn þeirra er
| Barn þeirra er

1. [[Reynir Carl Þorleifsson]] bakarameistari, „Reynir bakari“, f. 25. september 1952.
| 1. [[Reynir Carl Þorleifsson]] bakarameistari, „Reynir bakari“, f. 25. september 1952.

Útgáfa síðunnar 11. júlí 2016 kl. 17:39
Þorleifur Bragi Guðjónsson verkamaður fæddist 23. júlí 1922 í Fáskrúðsfirði og lést 9. nóvember 2010.
Foreldrar hans voru Guðjón Bjarnason útvegsbóndi og verkamaður á Fáskrúðsfirði, f. 15. mars 1892, d. 25. apríl 1979, og kona hans Ólafía Björg Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. desember 1892, d. 25. júní 1964.
Þorleifur var albróðir Lilju Guðjónsdóttur húsfreyju, konu Sigurðar Þórðarsonar útgerðarmanns, og hálfbróðir, (sammæddur), Sigurðar Stefánssonar sjómanns, f. 26. janúar 1915, d. 23. september 1967 og Kristínar Stefánsdóttur á Búðarfelli, f. 13. júlí 1916, d. 16. maí 2001.
Þorleifur ólst upp á Fáskrúðsfirði.
Hann fluttist til Eyja á þrítugsaldri, var þar verkamaður og þótti fjörmaður til verka.
Þau Erika skildu og fluttist Þorleifur til Reykjavíkur. Þar vann hann aðallega við teppalagnir hjá Axminster.
Syðra kvæntist hann aftur 1978.
Þorleifur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (23. nóvember 1952, skildu), var Erika Minna Maria Lemke húsfreyja, f. 22. mars 1912.
Barn þeirra er
1. Reynir Carl Þorleifsson bakarameistari, „Reynir bakari“, f. 25. september 1952.
II. Síðari kona Þorleifs, (1978), var Ursula von Bolsom.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 26. nóvember 2010. Minning.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.