„Lilja Jónsdóttir (Dölum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|250px|''Lilja Jónsdóttir. '''Lilja Jónsdóttir''' fæddist í Holti í Álftaveri í V-Skaft. 5. maí 1907 28. desember 2006. <br> ...)
 
m (Verndaði „Lilja Jónsdóttir (Dölum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 27. júlí 2015 kl. 12:11

Lilja Jónsdóttir.

Lilja Jónsdóttir fæddist í Holti í Álftaveri í V-Skaft. 5. maí 1907 28. desember 2006.
Faðir hennar var Jón Sverrisson yfirfiskimatsmaður í Eyjum, f. 22. janúar 1871 í Nýjabæ í Meðallandi, d. 5. mars 1968.
Móðir Lilju og kona Jóns Sverrissonar var Solveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 2. ágúst 1879 í Fagradal Mýrdal, d. 21. apríl 1955.

Systkini Lilju voru:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Ingibjörg Jónsdóttir, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
8. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
9. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
10. Kjartan Jónsson, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
11. Svanhildur Jónsdóttir, tvíburi, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
12. Rannveig Jónsdóttir, tvíburi, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
13. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður f. 11. desember 1919, d. 1. maí 2011.
14. Matthildur Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Lilja var með foreldrum sínum á 1. ári. Hún fór í fóstur til Sigurveigar Sigurðardóttur húsfreyju og Jóns Brynjólfssonar bónda á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 1908, var síðar vinnukona þar.
Hún fluttist til Eyja 1929, hóf nám í hárgreiðslu hjá frú Kristólínu Kragh 1934 og lauk sveinsprófi þaðan 1937. Starfaði hún hjá frú Kragh til 1942, en starfrækti síðan hárgreiðslustofu undir því nafni, ásamt Helgu Sigurðardóttur til 1953.
Hún flutti á hjúkrunarheimilið Klausturhóla á Kirkjubæjarklaustri 1995. Þar bjó hún til ársins 2000, er hún flutti á hjúkrunarheimilið Holtsbúð í Garðabæ þar sem hún lést 2006.
Lilja var ógift og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Morgunblaðið 8. janúar 2007. Minning.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.