Rannveig Jónsdóttir yngri (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rannveig Jónsdóttir húsfreyja frá Dölum fæddist 5. október 1915 í Holti í Álftaveri og lést 23. apríl 2002.
Foreldrar hennar voru Jón Sverrisson bóndi, yfirfiskimatsmaður, f. 22. janúar 1871, d. 5. mars 1968, og kona hans Solveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 20. ágúst 1879, d. 21. apríl 1955.

Börn Solveigar og Jóns voru:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson skipstjóri, síðar verkamaður, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Lilja Jónsdóttir hárgreiðslukona, f. 5. maí 1907, d. 28. desember 2006.
8. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
9. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
10. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
11. Kjartan Jónsson lyfjafræðingur, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
12. Svanhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
13. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
14. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Eyjum, d. 1. maí 2011.
15. Matthildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Rannveig var fósturbarn í Norðurhjáleigu í Álftaveri 1915-1928 og aftur 1929-1930. Hún var hjá foreldrum sínum í Dölum 1930, var í Reykjavík 1936, var húsfreyja þar 1948, í Kópavogi 1960.

Maður Rannveigar var Sigurður P. Gestsson, f. 22. ágúst 1917, d. 17. ágúst 1994.
Barn þeirra, (kjördóttir):
1. Ragnnheiður Kristín Sigurðardóttir, f. 3. desember 1961.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Niðjamót Solveigar og Jóns 1. júlí 1995, rit.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.