„Sigurður Jónsson (París)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sigurður Jónsson''' vinnumaður fæddist 1. september 1822 á Heiði á Síðu og lést 13. mars 1867 í Norðurgarði.<br> Foreldrar hans voru Jón Þorkelsso...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 10: Lína 10:
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
 
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Vinnumenn]]
[[Flokkur: Vinnumenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]

Núverandi breyting frá og með 22. ágúst 2015 kl. 20:38

Sigurður Jónsson vinnumaður fæddist 1. september 1822 á Heiði á Síðu og lést 13. mars 1867 í Norðurgarði.
Foreldrar hans voru Jón Þorkelsson bóndi, síðast í Efri-Mörk á Síðu, f. 1782, d. 31. maí 1843 í Efri-Mörk, og kona hans Gróa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1788 á Efri-Steinsmýri í Meðallandi, d. 14. nóvember 1880 í Ytra-Hrauni í Landbroti.

Sigurður var með foreldrum sínum til 1846, með móður sinni í Þykkvabæ 1846-1850. Þá fór hann austur á Djúpavog.
Hann fluttist að París 1856, var „sinn eiginn maður“ á Kirkjubæ í lok þess árs, „sjálfs sín“ þar 1857-1858, var fyrirvinna hjá Valgerði Sigurðardóttur í Háagarði 1859, vinnumaður þar 1860, í Kornhól 1862, í Fagurlyst 1863-1864, í Norðurgarði frá 1865- dd. 1867. Hann dó „úr innanmeinum“.
Sigurður var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.