„Björn Sigurðsson (Háagarði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Björn Sigurðsson''' sjómaður í Götu fæddist 21. ágúst 1824 á Litlu-Heiði í Mýrdal og drukknaði í apríl 1867.<br> Foreldrar hans voru Ingveldur Björnsdótt...)
 
Ekkert breytingarágrip
 
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 15: Lína 15:
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*[[Saga Vestmannaeyja]]. [[Sigfús M. Johnsen]]. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.}}
*[[Saga Vestmannaeyja]]. [[Sigfús M. Johnsen]]. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]

Núverandi breyting frá og með 11. júní 2015 kl. 17:42

Björn Sigurðsson sjómaður í Götu fæddist 21. ágúst 1824 á Litlu-Heiði í Mýrdal og drukknaði í apríl 1867.
Foreldrar hans voru Ingveldur Björnsdóttir, síðar húsfreyja í Pétursey og á Ytri-Sólheimum, f. 1799 á Snæbýli í Skaftártungu, d. 14. nóvember 1878 á Ytri-Sólheimum, og Sigurður Jónsson úr Mýrdal, síðar sjómaður og bóndi í Háagarði.

Björn var léttadrengur á Suður-Fossi í Mýrdal 1834 eða fyrr til 1835.
Hann var kominn til föður síns í Háagarði 1840 og var þar 1845, en var vinnumaður á Ofanleiti 1850 og þar var Helga Jónsdóttir vinnukona. Hann var hermaður í Herfylkingunni
Björn var 37 ára kvæntur húsbóndi í Götu 1860 með Helgu Jónsdóttur 46 ára.
Hann var skipverji á þilskipinu Helgu, sem fór til veiða í apríl 1867 og fórst.

Kona Björns, (6. nóvember 1854), var Helga Jónsdóttir húsfreyja í Götu, f. 1814 í Útskálasókn í Gull., d. 31. maí 1870, ekkja, niðursetningur á Kirkjubæ.
Barn þeirra var Þóra Björnsdóttir samkv. SMJ.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.